Loading Events

« All Events

Friðland í Flóa – fuglaskoðun 26. júní kl. 18:30

26. júní @ 18:30 - 20:00

Free

Fimmtudag 26. júní  verður boðið upp á fuglaskoðun í Friðlandinu í Flóa og leiðsögumaður að þessu sinni er Vala Friðriksdóttir, líffræðingur og félagi í Fuglavernd. 

 

Gengið er frá fuglaskoðunarhúsinu við bílastæðið í Friðlandinu

Fuglaskoðunin hefst kl. 18:30

Tímalengd: 1-1,5 klt.

Nauðsynlegur fatnaður: Gúmmístígvél og hlýr fatnaður.

Mikilvægur útbúnaður: Sjónauki.

Hámarksfjöldi er 15 manns.

Vinsamlega skráið ykkur með tölvupósti til fuglavernd@fuglavernd.is fyrir kl.13,  26. júní.

Nánari upplýsingar um svæðið og hvar það er staðsett norðan Eyrarbakka.

 

Gera má ráð fyrir rúma klukkustund í göngu og stöður til að sjá, heyra og upplifa fuglalífið í Friðlandinu.

Hlýr fatnaður er t.d. tvær peysur undir vindheldum stakki jafnvel lopapeysa eða dúnúlpa. Húfa, vettlingar og ullarsokkar. Það er júní og sumar en getur orðið svalt á kvöldin. Ef eru stígvelin þá fer maður í ullarsokka og sandala / skó sem mega þá blotna. 

Lómur (Gavia Stellata) ©Alex Máni
Lómur (Gavia Stellata) ©Alex Máni

Votlendisfuglar einkenna svæðið og eru bein tengsl við nálæg fuglarík svæði eins og fjöruna, Ölfusárós og Ölfusforir. Fuglalíf Friðlandsins í Flóa er sérstaklega auðugt og tegundaríkt á varptíma, en nærri 25 fuglategundir verpa þar að staðaldri. Einkennisfugl svæðisins er lómur.

 

Friðlandið í Flóa er votlendi sem hafist var handa við að endurheimta árið 1997 í samstarfi Fuglaverndar og sveitarfélagsins Árborgar.  Lesa meira um Friðlandið í Flóa, gróður, dýralíf og starf Fuglaverndar á svæðinu.

Hér er á ferðinni frábært tækifæri fyrir alla jafnt einstaklinga og  fjölskyldur að upplifa lifandi náttúru.

Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.

 

Vinsamlega skráið ykkur með tölvupósti til fuglavernd@fuglavernd.is fyrir kl. 13 fimmtudag 26. júní .

Details

Date:
26. júní
Time:
18:30 - 20:00
Cost:
Free
Event Category: