Skemmtileg jólagjöf fyrir fólk sem ann fuglum og íslenskri náttúru. Sendu okkur nafn, heimilisfang, og kennitölu þess sem skrá og nafn þitt og heimilisfang og við sendum þér inngöngupakka sem í er arnarritið (nýútgefið 50 síðna og myndum prýdd) og tímaritið okkar Fugla (afmælisrit-74 síður) til að setja undir jólatréið með fallegu fuglakorti. Aðeins 3.500,- kr.
Sem aðili að Fuglavernd færð þú:
- Áskrift að tímaritinu FUGLAR sem kemur út einu sinni á ári.
- Átt kost á því að sækja fyrirlestra og mynda-sýningar sem haldnar eru á vegum félagsins, ásamt fuglaskoðunarferðum og vettvangsfræðslu.
- Tekur þátt í að fylgja eftir markmiðum félagsins; að vernda fugla og búsvæði þeirra.
Árgjöld í Fuglavernd skiptast niður í nokkra flokka:
- Einstaklingsaðild fyrir fullorðinn, 4200 kr.
- Fjölskylduaðild fyrir tvo fullorðna, börn og unglinga undir 18 ára aldri, 5200 kr.
- Fyrirtækja- og bókasafnsaðild 5200 kr.
- Ungliðaaðild fyrir 18 ára og yngri, og eldriborgara aðild fyrir 65 ára og eldri 3200 kr.
- Einnig er tekið á móti frjálsum framlögum á reikninginn okkar: 0301-26-22994 – kt. 500770-0159 og hægt er að greiða reglulega með greiðslukorti með þvi að hafa samband við skrifstofu Fuglaverndar.
Á myndinni má sjá hettusöngvara gæða sér á reyniberjum, myndina tók Haukur Snorrason.