Sigurvegari slagorðasamkeppni – „Bjóðum fuglum heim“

Bjóðum fuglum heim er nýtt slagorð verkefnisins Peatland LIFEline. Blásið var til slagorðasamkeppni á samfélagsmiðlum á meðal almennings til að fanga anda íslensks votlendis, endurheimtar og tenginu við náttúru. Höfundur slagorðsins er Christian Schultze, rannsókna- og alþjóðafulltrúi hjá LBHÍ. Dómnefnd skipuðu Andri Snær Magnason rithöfundur, Bragi Valdimar Skúlason textasmiður og Bára Huld Beck kynningarstjóri verkefnisins.

Frestur rann út þann 16. janúar síðastliðinn og bárust alls 23 tillögur. Mörg hnyttin og skemmtileg slagorð voru meðal tillagna en var það einróma álit dómnefndar að vinningsslagorðið ætti best við verkefnið. Í umsögn dómnefndar segir: „Bjóðum fuglum heim er fallegt slagorð og rímar geysilega vel við markmið verkefnisins og nýtt merki/lógó þess sem er af fuglinum jaðrakan. Slagorðið er heimilislegt og kammó – og hljómar vel í okkar eyrum.“

Ásamt slagorðinu er komið íslenskt nafn fyrir verkefnið: Mýralíf. Þykir það vera í miklu samræmi við tilgang verkefnisins og passar vinningsslagorðið einstaklega vel við nýja nafnið.

Christian Schultze vinningshafi og Elisabeth Jeanne Marie Heloise Bernard verkefnastjóri Mýralífs. Mynd: Utra Mankasingh
Um verkefnið

Mýralíf (Peatland LIFEline) er umfangsmikið verkefni sem miðar að endurheimt votlendis og líffræðilegrar fjölbreytni á Íslandi. Verkefnið er samstarf sjö stofnana og félagasamtaka: Landbúnaðarháskóla Íslands, Lands og skógar, Náttúrufræðistofnunar, Fuglaverndar, Hafrannsóknastofnunar, Náttúruverndarstofnunar og bresku fuglaverndarsamtakanna RSPB. Verkefnið er að mestu fjármagnað af LIFE-áætluninni, sem er hluti af umhverfis- og loftslagsáætlun Evrópusambandsins. Það hófst formlega 1. september 2025 og stendur til loka febrúar 2031, eða í 66 mánuði.

Markmið Mýralífs er að efla yfirsýn og þekkingu á íslensku láglendisvotlendi, vistfræði þess, líffræðilegri fjölbreytni og hlutverki í kolefnishringrásinni. Sérstök áhersla er lögð á vistgerðina starungsmýravist, sem hefur mjög hátt verndargildi, auk fuglategundanna jaðrakans, stelks og lóuþræls, sem eru mikilvægir vísar um heilbrigði votlendis. Einnig verður sjónum beint að evrópska álnum sem er í útrýmingarhættu.

Íslenskt votlendi er einstakt í Evrópu, meðal annars vegna samspils ungs berggrunns, eldvirkni, áfoks og eldgosasögu. Þéttleiki fuglalífs er mikill og nokkrar tegundir reiða sig að stórum hluta á þessi svæði. Verkefnið mun leggja grunn að betri yfirsýn yfir ástand votlendissvæða og helstu áskoranir við endurheimt þeirra, auk þess sem lögð er áhersla á samfélagslega þátttöku og miðlun þekkingar.

 

Bára Huld Beck hóf störf hjá Fuglavernd 1. september 2025

Nýr kynningar- og samskiptastjóri hjá Fuglavernd

Bára Huld Beck hefur verið ráðin kynningar- og samskiptastjóri Fuglaverndar fyrir LIFE-verkefni um endurheimt votlendis sem unnið er í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands, Land og skóg, Náttúrufræðistofnun, Hafrannsóknastofnun, Náttúruverndarstofnun og bresku fuglaverndarsamtökin Royal Society for the Protection of Birds (RSPB).

Bára Huld hefur víðtæka reynslu en hún starfaði í fjölmiðlum um árabil. Hún hefur jafnframt setið í stjórn Blaðamannafélags Íslands síðustu fimm ár og í framkvæmdastjórn árin 2022-2023 og 2024-2025. Hún er með B.A.-gráðu í heimspeki og M.A.-gráðu í umhverfis- og náttúrusiðfræði og blaða- og fréttamennsku frá Háskóla Íslands. Hún hóf störf hjá Fuglavernd þann 1. september síðastliðinn.

Verkefnið sem um ræðir ber heitið Peatland LIFEline og miðar að endurheimt votlendis og líffræðilegrar fjölbreytni á Íslandi. Áhersla verður m.a. lögð á þrjár fuglategundir sem eru tákn um heilbrigt votlendi. Það eru tegundirnar jaðrakan, stelkur og lóuþræll. Auk þessa verður mikil áhersla lögð á samfélagslega þátttöku og miðlun þekkingar. Verkefnið er formlega hafið og mun standa yfir til byrjun árs 2031.

Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um verkefnið og starfsemi Fuglaverndar hjá Báru Huld í síma 697-3469 og í gegnum tölvupóstfangið barahuld hjá fuglavernd.is.

Við hjá Fuglavernd bjóðum Báru Huld velkomna til starfa.