Hollvinir Tjarnarinnar eru óformlegur hópur innan Fuglaverndar, sem stofnaður var árið 2013 í samvinnu við Norræna Húsið.
Tilgangur Hollvina Tjarnarinnar er að virkja krafta þeirra áhugamanna sem tilbúnir eru að leggja góðu málefni lið, að hlúa að lífríki Tjarnarinnar og friðlandsins í Vatnsmýrinni.
Árlega skipuleggur hópurinn tiltekt í friðlandinu í Vatnsmýri, venjulega í apríl. Þá koma sjálfboðaliðar og tína rusl, grisja sjálfsáðan trjágróður og fleira til að gera svæðið að aðlaðandi varpsvæði fyrir endur og mófugla.
Friðlandið í Vatnsmýri
Á Facebook er síða um Friðlandið í Vatnsmýrinni. Þar er meðal annar að finna skýrslu um fuglalíf tjarnarinnar sem þeir Ólafur K. Nielsen og Jóhann Óli Hilmarsson hafa tekið saman á vegum Reykjavíkurborgar.
Skýrsla um fuglalíf Tjarnarinnar 2022
Ljósmyndir úr friðlandinu í Vatnsmýri
Árleg tiltekt í friðlandinu í Vatnsmýrinni
Laugardaginn 15. apríl Vorverk í Vatnsmýrinni, Hollvinir Tjarnarinnar
Laugardaginn 9. apríl 2022: Vorverk í Vatnsmýrinni
Laugardaginn 4. apríl 2020: Vorverkin í Vatnsmýrinni
Laugardaginn 6. apríl 2019: Vorverkin í Vatnsmýrinni
Laugardaginn 7. apríl 2018: Tiltekt í friðlandinu í Vatnsmýrinni
Laugardaginn 8. apríl 2017: Tiltekt í friðlandinu í Vatnsmýri
Laugardaginn 23. apríl 2016 Hollvinir Tjarnarinnar taka til í friðlandinu í Vatnsmýrinni
Laugardaginn 18. apríl 2015
Laugardaginn 5. apríl 2014 Hollvinir Tjarnarinnar, allir velkomnir
Laugardaginn 7. apríl 2013 Hollvinir Tjarnarinnar