Fuglaskoðun
Þrír félagar Fuglaverndar fóru í leiðangur um Hvalfjörð að leita uppi 5.000 tjalda laugardaginn 21. febrúar síðastliðinn.
Meðal staða sem stoppað var á, kíkt og talið, voru Hvalfjarðareyri, Hvammsvík, Brynjudalsvogur og Bjarteyjarsandur. Auk þess var í lok ferðar komið við á Breiðinni, Akranesi.
Félagarnir sáu alls 397 tjalda. Mesti fjöldi á einum stað var í Brynjudalsvogi, eða um 200 talsins, og næstmest í Hvammsvík, eða 80 tjaldar.
Veður var vetrarlegt: Norðaustan garri, léttskýjað og hiti um frostmark. Frekar kaldur dagur en mjög skemmtilegur leiðangur. Nesti var snætt í skjóli barrtrjáa við Fossá.





