Stífla í ánni Melsá í Ytri-Hraundal hefur verið fjarlægð. Framkvæmdum lauk í desember síðastliðnum með góðum árangri. Open Rivers Programme, styrktarsjóður til að styðja við áætlanir um að fjarlægja manngerðar stíflur í árfarvegum, styrkti Fuglavernd árið 2025 til að fjarlægja stífluna.
Kom á óvart hver mikið af steinsteypu var undir torfgarðinum
Markmið framkvæmdarinnar var að endurheimta vatnasvæði árinnar fyrir fugla og fiska – og gera sjóbirtingi kleift að ferðast upp ána. Samstarfsaðilar Fuglaverndar voru Land og skógur, Hafrannsóknarstofnun og Breska fuglaverndarfélagið (RSPB).
Rannsóknir hófust í byrjun maí og var stíflan var svo fjarlægð með öllu í desember 2025. Framkvæmdin gekk vel en hún tafðist eilítið vegna mikilla rigninga og þurfti að bíða eftir frosti svo þungar vinnuvélar kæmust alla leið á framkvæmdarsvæðið. Það kom á óvart hve fjarlægja þurfti mikið af steinsteypu sem kom í ljós undir torfgarðinum út frá stíflunni.

Mikilvægt að varna rofi í árbökkum
Fuglavernd réð sérfræðinga frá skoska fyrirtækinu CBEC sem sérhæfa sig í náttúrumiðuðum lausnum í endurheimt árfarvega. Vatnsstreymi var mælt fyrir og eftir framkvæmd og passað var upp á að varna rofi í árbökkum eftir að stíflan var fjarlægð.
Þetta er í annað sinn sem Open Rivers Programme styrkir Fuglavernd. Góðgerðarsamtök, frjáls félagasamtök og opinberir aðilar geta sótt um styrki til að fjarlægja smærri stíflur í ám og lækjum sem hafa áhrif á vatnasvið og líffræðilegan fjölbreytileika.


