Garðfuglahelgin 2025 skilafrestur er til 15. febrúar.
Árlega fitjar Fuglavernd upp á talningu garðfugla yfir eina helgi. Allir sem hafa aðgang að garði geta tekið þátt í garðfuglahelgi.
Venjulega er um að ræða síðustu helgina í janúar og nú er hún liðin sú síðasta helgi. Um var að ræða 24. – 27. janúar og hver og ein réð því hvaða dag hann taldi sinn klukkutíma.
Skilafrestur talninga er til 15. febrúar og Fuglavernd bíður spennt eftir niðustöðum frá öllum þátttakendum svo hægt verður að birta þær.