Hólmfríður framkvæmdastjóri Fuglaverndar tók þátt í fundi BirdLife Evrópu og mið Asíu sem haldinn var í síðustu viku í Almaty, Kazakstan en þar voru samankomnir fulltrúar frá 50 löndum til að miðla reynslu sinni af verndun og endurheimt búsvæða. Eftir fundinn var farið í fugla- og náttúruskoðun í þjóðgarðinn Altyn-Emel og sáust m.a. villtir asnar og gasellur, refir, eðlur, ernir, fálkar og hrægammar- ekki náðust þó þessi dýr á mynd . Fuglavernd hefur verið fullgildur aðili að BirdLife frá því 2018 og hefur þetta samstarf skipt okkur miklu máli þar sem við höfum fengið bæði tæknilega og fjárhagslega aðstoð frá þeim.
22