Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Wingspan spilamót í boði Fuglaverndar og Landverndar

15. maí @ 20:00 - 22:30

Er hettumávur uppáhalds fuglinn þinn? Ert þú uppfull/ur/t af æsingi yfir því að farfuglarnir séu LOKSINS mættir til landsins? Vantar þig fleira fuglaáhugafólk í líf þitt?
KOMDU Á WINGSPAN SPILAMÓT Á LOFT HOSTEL ÞANN 15.MAÍ
Við ætlum að bjóða til Wingspan spilamóts þar sem spiluð verður grunnútgáfa spilsins (án expansion pakka) á nokkrum borðum í einu. STIGAHÆSTU SPILARAR KVÖLDSINS HLJÓTA VEGLEGA (fugla)VINNINGA!
Dæmi um vinninga:
*12.6 kg af gómsætu fuglafóðri
*Fuglabarmnælur
*Fóðurkúlumedalíur
*Aðdáun foreldra þinna sem hafa aldrei skilið hvað þetta fugladæmi snýst eiginlega um.
Allt fugla- og spilafólk er hjartanlega velkomið á kvöldið á Loft Hostel á Bankastræti 7, 101 Reykjavík. Takið með ykkur góðan spilafélaga, fáið ykkur TILBOÐSBJÓR á barnum því það er kominn tími á fugladansinn! Athugið að það þarf ekki að kunna spilin til að mæta. Spilasérfræðingar verða á svæðinu frá báðum samtökum og leiða þá sem vilja í gegnum spilin.
Happy hour er frá 15:00 til 19:00 og þátttakendur fá 15% afslátt af bjór á dælu og húsvíni.
Má bjóða þér að skrá þig í Landvernd og/eða Fuglavernd?
https://landvernd.is/gerast-felagi/
https://fuglavernd.is/…/um…/gerast-felagi-i-fuglavernd/
///// English:
Is the Black-headed Gull your favourite bird? Are you bursting from excitement from the fact that the migratory birds are FINALLY here? Do you need more bird-minded people in your life?
JOIN US FOR A WINGSPAN TOURNAMENT AT LOFT HOSTEL ON MAY 15TH!
You are hereby invited to the Icelandic Wingspan Tournament where we will be playing the standard edition of the board game Wingspan (no expansion packs) on multiple tables at once. THE PLAYERS WITH THE MOST POINTS AT THE END OF THE TOURNAMENT SHALL RECEIVE GENEROUS (bird) PRIZES!
These prizes include:
*12.6 kg af bird feed
*Bird pins
*Bird-seed ball medallions
*The respect of your parents (finally) which have never quite understood this bird interest of yours.
All bird and board game enthusiasts are welcome to Loft Hostel at Bankastræti 7, 101 Reykjavík. Grab a friend and buy yourself a beer at the bar because it’s Wingspan time! If you are a beginner at Wingspan don’t worry because our experts will be there to guide you through the wonders of Wingspan.
Happy hour is between 15:00 til 19:00 og participants get 15% discount of beer on tap and the housewine.

Venue

Loft Hostel
Bankastræti 7
Reykjavík, 101 Iceland