- This event has passed.
Tiltekt í friðlandinu í Vatnsmýrinni – Hollvinir tjarnarinnar
07.04.2018 @ 13:00 - 17:00
Hollvinir tjarnarinnar eru óformlegur hópur sjálfboðaliða á vegum Fuglaverndar sem hafa árlega hittst við Norræna Húsið og tekið til í friðlandi fugla í Vatnsmýrinni. Sjálfboðaliðar hafa týnt rusl á svæðinu og lagt greinar í bakka til að varna landbroti og fleiri verk. Framkvæmdir á vegum Reykjavíkurborgar standa yfir á svæðinu. Markmiðið er að gera svæðið aðlaðandi varpsvæði fyrir endur og mófugla.
Þessa sömu helgi, 7.-8. apríl er umhverfishátíð í Norræna húsinu, frá kl. 13-17 báða dagana og verður Fuglavernd einnig með kynningu á félaginu þar.
Friðlandið í Vatnsmýrinni er með Facebooksíðu
Í ár ætlum við að hittast í tiltektina laugardaginn 7. apríl kl. 13-17.
Allir velkomnir.