- This event has passed.
Gerum heimilin grænni – Umhverfishátíð Norræna hússins
07.04.2018 @ 13:00 - 08.04.2018 @ 17:00
Helgina 7.-8. apríl mun fjölbreytt umhverfisdagskrá fyrir gesti á öllum aldri fylla Norræna húsið. Markmiðið er að kynna einfaldar og skemmtilegar lausnir sem stuðla að grænna heimili.
Boðið verður upp á m.a. smiðjur, fyrirlestra, námskeið, kynningar, hönnunarsýningu og heimildarmyndir. Viðburðirnir eiga sammerkt að kynna leiðir til að nýta betur verðmætin allt í kringum okkur og draga úr sóun á ýmsum sviðum. Heimili okkar – hús og garður – eru lítil vistkerfi þar sem við setjum reglurnar!
Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Viðburðir fyrir börn/fjölskyldur
- Umhverfisskóli Landverndar, sunnudag
- Heimsókn í gróðurhúsið til ömmu náttúru, gróðursetjum og fáum góð ráð fyrir garðinn, laugardag og sunnudag kl. 13-16
Furðuverusmiðjan, viltu búa til furðufisk eða geimveru? Þú ræður! á vinnustofunni verður unnið með textílefni sem fellur til við framleiðslu á Íslandi, laugardag kl. 14-16 (skráning) - Vorverkin í Vatnsmýrinni, Fuglavernd stendur fyrir tiltekt í fuglafriðlandinu í Vatnsmýrinni, göngutúr til góðs! Laugardag kl. 13-17.
Aðrir viðburðir
- Svona drögum við úr matarsóun / Fyrirlestrar: Selina Juul frá Stop Spild af Mad og Klaus B. Pedersen frá Too Good To Go. Bæði hafa hlotið Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs fyrir frábæran árangur í baráttunni gegn matarsóun, laugardag kl. 16-17. Spjall og smakk eftir fyrirlestrana.
- Súrkál fyrir sælkera: Dagný Hermannsdóttir fræðir gesti um bæði ævafornar og nýtískulegar aðferðir til að sýra grænmeti. Gestir fá tækifæri til að smakka einstök sýnishorn úr garðinum hjá Dagnýju! Sunnudag.
- Örnámskeið í moltugerð: Garðyrkjufélag Íslands stendur fyrir námskeiði í moltugerð og kynnir einfaldar aðferðir sem henta bæði fyrir eldhúsið og garðinn. Sunnudag.
- Al-íslenska flatbakan: matarspjall og smakk, Sveinn Kjartansson sjónvarpskokkur og Flatbökusamsteypan ræða um pizzuna sem hina fullkomnu sveigjanlegu uppskrift OG hvernig nýta má íslenskt hráefni á frumlegan hátt, sunnudag kl. 15-17.
Heimildarmyndir
- Just Eat It: A Food Waste Story, margverðlaunuð heimildarmynd um matarsóun, föstudag 6. apríl og sunnudag 8. apríl kl. 18.
http://www.foodwastemovie.com - Flatbökusamsteypan, á hátíðinni verður hægt að sjá stutta heimildarmynd um hið bráðfallega matarverkefni Flatbökusamsteypunnar.
Fræðslu- og kynningarbásar
- Arctic Barley
- Fuglavernd
- Gardyrkjufélag Íslands
- Graenviska.is
- Í boði náttúrunnar
- Klaran.is
- Landvernd
- Ljótu kartöflurnar
- Matis
- mena.is
- Mistur.is
- Sorpa
- Súrkál fyrir sælkera
- Ugly
- Umhverfisstofnun
- Verandi (laugardag)
Matarhönnun: Sýning á vegum hönnunarnema við Listaháskóla Íslands
Þema sýningarinnar er matur, matarupplifun, matarhönnun, vannýtt hráefni og nýsköpun. Frumleg, falleg og þankavekjandi sýning frá upprennandi vöruhönnuðum.
Saumaverkstæðið: saumaðu þinn eigin innkaupapoka
Kvenfélagasamband Íslands opnar saumaverkstæði í Norræna húsinu. Áttu efnisbúta, sterklegan dúk eða gardínur heima sem verðskulda nýtt líf? Taktu efnin með og saumaðu þinn eigin innkaupapoka – eða leyfðu annarra að njóta þeirra!