Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Gerum heimilin grænni – Umhverfishátíð Norræna hússins

07.04.2018 @ 13:00 - 08.04.2018 @ 17:00

Helgina 7.-8. apríl mun fjölbreytt umhverfisdagskrá fyrir gesti á öllum aldri fylla Norræna húsið. Markmiðið er að kynna einfaldar og skemmtilegar lausnir sem stuðla að grænna heimili.

Boðið verður upp á m.a. smiðjur, fyrirlestra, námskeið, kynningar, hönnunarsýningu og heimildarmyndir. Viðburðirnir eiga sammerkt að kynna leiðir til að nýta betur verðmætin allt í kringum okkur og draga úr sóun á ýmsum sviðum. Heimili okkar – hús og garður – eru lítil vistkerfi þar sem við setjum reglurnar!

Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Viðburðir fyrir börn/fjölskyldur

  • Umhverfisskóli Landverndar, sunnudag
  • Heimsókn í gróðurhúsið til ömmu náttúru, gróðursetjum og fáum góð ráð fyrir garðinn, laugardag og sunnudag kl. 13-16
    Furðuverusmiðjan, viltu búa til furðufisk eða geimveru? Þú ræður! á vinnustofunni verður unnið með textílefni sem fellur til við framleiðslu á Íslandi, laugardag kl. 14-16 (skráning)
  • Vorverkin í Vatnsmýrinni, Fuglavernd stendur fyrir tiltekt í fuglafriðlandinu í Vatnsmýrinni, göngutúr til góðs! Laugardag kl. 13-17.

Aðrir viðburðir

  • Svona drögum við úr matarsóun / Fyrirlestrar: Selina Juul frá Stop Spild af Mad og Klaus B. Pedersen frá Too Good To Go. Bæði hafa hlotið Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs fyrir frábæran árangur í baráttunni gegn matarsóun, laugardag kl. 16-17. Spjall og smakk eftir fyrirlestrana.
  • Súrkál fyrir sælkera: Dagný Hermannsdóttir fræðir gesti um bæði ævafornar og nýtískulegar aðferðir til að sýra grænmeti. Gestir fá tækifæri til að smakka einstök sýnishorn úr garðinum hjá Dagnýju! Sunnudag.
  • Örnámskeið í moltugerð: Garðyrkjufélag Íslands stendur fyrir námskeiði í moltugerð og kynnir einfaldar aðferðir sem henta bæði fyrir eldhúsið og garðinn. Sunnudag.
  • Al-íslenska flatbakan: matarspjall og smakk, Sveinn Kjartansson sjónvarpskokkur og Flatbökusamsteypan ræða um pizzuna sem hina fullkomnu sveigjanlegu uppskrift OG hvernig nýta má íslenskt hráefni á frumlegan hátt, sunnudag kl. 15-17.

Heimildarmyndir

  • Just Eat It: A Food Waste Story, margverðlaunuð heimildarmynd um matarsóun, föstudag 6. apríl og sunnudag 8. apríl kl. 18.
    http://www.foodwastemovie.com
  • Flatbökusamsteypan, á hátíðinni verður hægt að sjá stutta heimildarmynd um hið bráðfallega matarverkefni Flatbökusamsteypunnar.

Fræðslu- og kynningarbásar

  • Arctic Barley
  • Fuglavernd
  • Gardyrkjufélag Íslands
  • Graenviska.is
  • Í boði náttúrunnar
  • Klaran.is
  • Landvernd
  • Ljótu kartöflurnar
  • Matis
  • mena.is
  • Mistur.is
  • Sorpa
  • Súrkál fyrir sælkera
  • Ugly
  • Umhverfisstofnun
  • Verandi (laugardag)

Matarhönnun: Sýning á vegum hönnunarnema við Listaháskóla Íslands
Þema sýningarinnar er matur, matarupplifun, matarhönnun, vannýtt hráefni og nýsköpun. Frumleg, falleg og þankavekjandi sýning frá upprennandi vöruhönnuðum.

Saumaverkstæðið: saumaðu þinn eigin innkaupapoka
Kvenfélagasamband Íslands opnar saumaverkstæði í Norræna húsinu. Áttu efnisbúta, sterklegan dúk eða gardínur heima sem verðskulda nýtt líf? Taktu efnin með og saumaðu þinn eigin innkaupapoka – eða leyfðu annarra að njóta þeirra!

Details

Start:
07.04.2018 @ 13:00
End:
08.04.2018 @ 17:00
Event Categories:
,

Organizer

Fuglavernd
Phone
5620477
Email
fuglavernd@fuglavernd.is
View Organizer Website

Venue

Norræna húsið
Sæmundargata
Reykjavík, Reykjavík 101 Iceland
+ Google Map