Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Galapagos og Ekvador

14.11.2018 @ 20:00 - 22:00

Frítt
Öldutrosi á Española ©Jóhann Óli Hilmarsson

Einstakt dýralíf á Galapagos og litskrúðugir fuglar í Ekvador.

Miðvikudaginn 14. nóvember heldur Gunnlaugur Sigurjónsson myndasýningu í Arion banka við Borgartún og segir frá ferð sinni til Galapagoseyja og regnskóga Ekvador.

Síðastliðið vor hélt Gunnlaugur ásamt Jóhanni Óla Hilmarssyni, formanni Fuglaverndar í ævintýrasiglingu um Galapagos eyjaklasann.  Eyjarnar eru þekktar fyrir hið einstaka dýralíf og er fjöldi einlendra (endemiskra) tegunda mikill.

Fyrir utan finkurnar, sem komu Darwin á sporið varðandi þróun tegundanna, eru þar t.d. einu mörgæsir og albatrosar í heimi, sem verpa norðan miðbaugs.  Súlur, skrofur, sæsvölur, skarfar, hegrar, vaðfuglar og freigátufuglar eru á hverju strái. Fuglarnir eru allir mjög spakir, sem og Iguana eðlurnar, risaskjaldbökurnar, sæljónin og fjöldi annarra dýra, sem eru á og við eyjarnar.

Galapagoseyjar eru eldfjallaeyjar og minna um margt á Vestmanneyjar, en úrkoman miklu minni og gróður allur annar. – Á leiðinni stoppuðu þeir félagar í 6 daga í regnskógum Ekvador og mynduðu afar skrautlega fugla, þar af um 25 tegundir kólibría.  Ekvador er eitt tegundaríkasta land í heimi.

Sýningin hefst kl. 20:00.

Allir velkomnir, frítt inn fyrir félagsmenn Fuglaverndar. Aðgangseyrir 500 kr. fyrir utanfélagsmenn.

Details

Date:
14.11.2018
Time:
20:00 - 22:00
Cost:
Frítt
Event Category:
Event Tags:
, ,

Organizer

Fuglavernd
Phone
5620477
Email
fuglavernd@fuglavernd.is
View Organizer Website

Venue

Sal Arionbanka
Borgartún 19
Reykjavík, 105
+ Google Map