- This event has passed.
Aðalfundur 2019
11.03.2019 @ 16:30 - 18:00
fríttFormaður Fuglaverndar Jóhann Óli HIlmarsson við myndatöku í Hafnarhólma – Ljósmynd: © Dögg Matthíasdóttir
Aðalfundur Fuglaverndar 2019 verður haldinn mánudaginn 11. mars kl. 16:30 í sal á neðstu hæð Bókasafns Kópavogs að Hamraborg 6a. Við ætlum að byrja á að vera með stutt erindi um þá erfðagjöf sem Magnús Þorsteinsson færði félaginu þ.e.a.s. hluta í Hafnarhólma og Njarðvík í Borgarfirði Eystri.
Samkvæmt lögum félagsins hefur aðalfundur æðsta vald í málefnum félagsins. Hann skal halda fyrir sumardaginn fyrsta ár hvert og skal dagskrá hans vera sem hér segir:
- Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu almanaksári.
- Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins.
- Breytingar á samþykktum félagsins samkvæmt 7. gr.
- Kosin stjórn samkæmt 5 gr. samþykkta félagsins.
- Kosinn skoðunarmaður félagsreikninga og einn til vara.
- Ákvörðun árgjalds.
- Önnur mál.