Stífla fjarlægð í Melsá
Stífla fjarlægð í ánni Melsá í landi Ytri-Hraundals 2025
Open Rivers Programme, styrktarsjóður til að styðja við áætlanir um að fjarlægja manngerðar stíflur í árfarvegum, styrkti Fuglavernd árið 2025 til að fjarlægja stíflu í ánni Melsá í Ytri-Hraundal. Markmið okkar með þessari framkvæmd var að endurheimta vatnasvæði árinnar fyrir fugla og fiska, og gera sjóbirtingi kleift að ferðast upp hana. Samstarfsaðilar okkar voru Land og skógur, Hafrannsóknarstofnun og Breska fuglaverndarfélagið (RSPB). Stíflan var svo fjarlægð með öllu í desember 2025. Framkvæmdin gekk vel, tafðist aðeins vegna mikilla rigninga og þurfti að bíða eftir frosti svo þungar vinnuvélar kæmust alla leið á framkvæmdarsvæðið. Það kom svo á óvart hve fjarlægja þurfti mikið af steinsteypu sem kom í ljós undir torfgarðinum út frá stíflunni. Við réðum sérfræðinga frá skoska fyrirtækinu CBEC sem sérhæfa sig í náttúrumiðuðum lausnum í endurheimt árfarvega. Vatnsstreymi var mælt fyrir og eftir framkvæmd og passað var upp á að varna rofi í árbökkum eftir að stíflan var fjarlægð.
Góðgerðarsamtök, frjáls félagasamtök og opinberir aðilar geta sótt um styrki til að fjarlægja smærri stíflur í ám og lækjum sem hafa áhrif á vatnasvið og líffræðilegan fjölbreytileika.
Þetta er í annað sinn sem Open Rivers Programme styrkir Fuglavernd.
Nánar má lesa um verkefnið á ensku á síðu Open rivers programme
Hér má sjá verkefni um alla Evrópu sem Open Rivers hefur styrkt.
Hér má finna bækling á íslensku með upplýsingum um Open Rivers.
Hér fyrir neðan má sjá breytingarnar eftir að stíflan var fjarlægð.
©Fuglavernd 2021 | Hverfisgötu 105 | 101 Reykjavík | kt.5007700159 | Opið:_mán-fim kl. 9-13 | +354 562 0477| fuglavernd@fuglavernd.is
