Svartþröstur
Svartþröstur ber fræðiheitið Turdus merula og er af þrastaætt (Turdidae).
Fræðiheiti: Turdus merula.
Ætt: Þrastaætt (Turdidae).
Einkenni: Fullorðinn karlfuglinn er alsvartur að lit með gulan gogg. Gulur augnhringur. Kvenfuglar eru dökkbrúnir aðeins ljósari að neðan, kverkin ljósust. Rákir á bringur og brjósti. Ungfuglar eru svipaðir að lit og kvenfuglar en eru rákóttari, goggurinn á ungum karlfuglum lýsist eftir því sem líður á vetur.
Far: Líklegt að þeir eru staðfuglar. Nokkuð algengur haust og vetrargestur. Svartþrestir byrjuðu að verpa í einhverju mæli á Innnesjum eftir mikla göngu vorið 2000. Uppruni þeirra er ekki ljós. Svartþrestir koma til Íslands í töluverðu mæli á haustin, fuglar sem lenda í villast á farflugi, og sjást nú orðið í görðum og trjálundum víðast hvar.
Varptími: Byrja varp snemma, apríl og fram í ágúst. Geta verpt nokkrum sinnum yfir sumarið, jafnvel þrisvar.
Fæða: Aðallega skordýr og ánamaðkar. Ber að hausti og frameftir vetri á meðan þau eru til staðar. Kemur í fuglafóður. Epli eru þá sérstaklega vinsæl hjá þeim.
Stofnstærð: Svartþröstur er nú algengur varpfugl í þéttbýli á Suðvesturlandi og verpur auk þess hér og hvar á Suður-, Vestur- og Norðurlandi. Er líklega alger staðfugl og sáust yfir 2.000 fuglar í vetrarfuglatalningu Náttúrufræðistofnunar um áramótin 2016/2017.
EVRÓPA (VARPPÖR) | ÍSLAND (VARPPÖR) | ÍSLAND VETUR (EINSTAKLINGAR) |
40.000.000-82.000.000 | gæti verið nokkur þúsund pör | 2.000> |
Vefverslun
Í vefverslun Fuglaverndar má kaupa fuglafóður og hreiðurhús fyrir þresti.
©Fuglavernd 2021 | Hverfisgötu 105 | 101 Reykjavík |Opið mán-fim kl. 9-13 | +354 562 0477| fuglavernd@fuglavernd.is