Dagur íslenskrar náttúru

Dagur íslenskrar náttúru, 16. september ár hvert, er fæðingardagur Ómars Ragnarssonar.

Dagurinn er viðurkenning á framlagi Ómars til náttúruverndar og almenningsfræðslu um mikilvægi íslenskrar náttúru sem og allra þeirra sem lagt hafa sitt af mörkum til að fræða um íslenska nátttúru.

Ómar Ragnarsson hefur á undanförnum áratugum unnið framúrskarandi og óeigingjarnt starf á fjölmörgum sviðum. Hann er landsþekktur fyrir störf sín í fjölmiðlum og hefur gert náttúru Íslands einstök skil í sjónvarpi. Ómar er fjölfróður á sviði íslenskrar landa- og náttúrufræði og hann hefur nýtt þessa þekkingu við framleiðslu fjölda sjónvarpsþátta sem hafa opnað augu Íslendinga fyrir stórbrotinni fegurð Íslands. Hann hefur sýnt þjóðinni afskekkta staði sem fáir þekktu fyrir og hann hefur greint frá náttúruundrum, jarðskjálftum og eldgosum í máli og myndum.

 

 #íslensknáttúra og #DÍN

Fátt hefur mótað íslenska þjóð eins og náttúran. Íslendingar hafa aðlagað líf sitt samspili elds og ísa, dyntóttum veðurguðum og kröftugum sjávarföllum. Um leið hafa þeir notið alltumlykjandi náttúrufegurðar og haft lífsviðurværi sitt af ríkulegum gjöfum náttúrunnar.

Dagur íslenskrar náttúru er haldinn hátíðilegur 16. september ár hvert og eru einstaklingar, skólar, stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök hvött til að hafa daginn í huga í starfsemi sinni. Þeir sem nýta sér samfélagsmiðla í tengslum við daginn minntir á myllumerkin #íslensknáttúra og #DÍN.

Í tengslum við Dag íslenskrar náttúru afhendir umhverfis- og auðlindaráðherra tvær viðurkenningar; Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti og Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, Jarðarberið.

Upplýsingar um viðburði, verkefni og uppákomur í tilefni dagsins má senda til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins á netfangið bergthora.njala@uar.is.

sjá nánar:  www.stjornarradid.is/din