Músarindill
Músarindill ber fræðiheitið Troglodytes troglodytes og er af Rindlaætt (Troglodytidae).
Fræðiheiti: Troglodytes troglodytes.
Ætt: Rindlaætt (Troglodytidae).
Einkenni: Brúnleitur lítill fugl og yrjóttur aðallega á vængjum og að neðan. Ljósari að neðan. Eitt helsta einkenni er upprétt stél. Goggur mjór og stuttur.
Búsvæði: Birkikjarr og birkiskógar. Hann er einnig að finna í ræktuðum skógum. Þá er sérstaklega að finna þar sem lækir eru til staðar.
Far: Staðfugl. Kemur helst í garða að haustlagi en geta þó komið í heimsókn allan veturinn.
Varptími: Frá því snemma í maí og fram í byrjun júlí.
Fæða: Aðallega skordýr. Kemur ekki í fóður í görðum.
Stofnstærð: Músarrindill er strjáll varpfugl víða á láglendi, langmest í birkikjarri og birkiskógum en einnig sums staðar í grónum urðum, sjávarbjörgum og síðustu ár í skógræktarreitum. Giskað hefur verið á að varpstofninn sé 3.000−5.000 pör (Náttúrufræðistofnun Íslands 2000). Varpútbreiðslan hefur eitthvað aukist á seinni árum og fuglum hugsanlega fjölgað, nú verpa þeir t.d. allvíða í jaðri höfuðborgarsvæðisins.
EVRÓPA (VARPPÖR) | ÍSLAND (VARPPÖR) | ÍSLAND VETUR (EINSTAKLINGAR) |
23.000.000-40.000.000 | 3.000-5.000 | 3.000-10.000 |
Hreiðurhús fyrir músarindil
Til styrktar Fuglavernd seljum við í vefversluninni hreiðurhús fyrir músarindil.
©Fuglavernd 2021 | Hverfisgötu 105 | 101 Reykjavík |Opið mán-fim kl. 9-13 | +354 562 0477| fuglavernd@fuglavernd.is