Stjórn Fuglaverndar hefur unnið að og mótað stefnu fyrir félagið, og gildir núverandi stefna til ársins 2020.
Áherslur 2015-2020
- Fuglavernd vinnur að vernd fugla og búsvæða þeirra.
- Grunngildi Fuglaverndar er sjálfbærni og fræðsla sem stuðlar að virðingu fyrir náttúrunni og lífríki hennar og þarf að hafa þessi grunngildi til hliðsjónar í öllum markmiðum Fuglaverndar.
- Fuglavernd er fulltrúi Íslands hjá Alþjóða fuglaverndarsamtökunum, BirdLife International.
Tegundaverndaráætlun – markmið
- Forgangsraða mikilvægi tegunda með hliðsjón af hættunni sem stafar að þeim með tilliti til tiltækra úrræða.
- Að auka þekkingu á stöðu þeirra fuglategunda á Íslandi sem eiga undir högg að sækja.
- Að skot- og fiskveiðar verði sjálfbærar, hafi sjálfbæra nýtingu að leiðarljósi.
Búsvæðaverndaráætlun – markmið
- Endurskoða allar skráningar á Alþjóðlega mikilvægum fuglasvæðum – IBA (Important Bird Areas) svæðum á Íslandi.
- Að leggja sérstaka áherslu á frekari verndun mikilvægra fuglasvæða.
- Endurheimta og vernda votlendi.
- Hvetja almenning, stjórnvöld, sveitastjórnir og framkvæmdaaðila til að virða búsvæði fugla og fylgjast með að í lagaumhverfinu felist fullnægjandi vernd og að það sé ekki virt að vettugi.
- Að draga úr mengandi starfsemi sem hefur áhrif á lífríki lands og sjávar.
Að fá fólkið í landinu í lið með okkur (fræðsla og sjálfbærni)
- Hvetja almenning, ríkisstjórn, sveitarfélög og sérfræðinga til að taka þátt í verndunarstarfi og auka vitund um fuglavernd.
- Hlúa að núverandi félagsmönnum og fjölga félagsmönnum Fuglaverndar.
- Fjölga virkum sjálfboðaliðum og sinna þeim sem fyrir eru.
- Standa fyrir útgáfu og fræðslu.
- Fá fuglaáhugafólk/sjálfboðaliða til að telja fugla.
- Efla samvinnu við önnur félagasamtök á sviði umhverfis – og náttúruverndar.
- Efla samvinnu við stjórnvöld, stofnanir og sveitafélög.
- Efla samvinnu við erlend systurfélög.
—
Síðast breytt: 6. nóvember 2017