Heiðlóan er Fugl ársins 2021!
Það er heiðlóan sem er sigurvegari kosninga um titilinn Fugl ársins 2021 og bætir þar með enn einni fjöður í sinn fagra hatt. Hún flaug beint á toppinn í atkvæðagreiðslunni og sigraði með glæsibrag þar sem hún fékk bæði flest atkvæði sem 1. val kjósenda og var einnig með flest atkvæði samanlagt sem 1.-5. val. Himbriminn veitti henni harða keppni.
Sjá nánar í frétt um Fugl ársins 2021
Leitin að Fugli ársins 2021
Fuglar eru hluti af daglegu lífi fólks, flestir eiga sinn uppáhalds fugl og hverjum þykir sinn fugl fagur.
Í vetur hafa staðfuglar og vetrargestir glatt okkur með nærveru sinni en nú nálgast vorið og farfuglarnir fara að tínast til okkar á eyjunni fögru. Fuglavernd fagnaði vorkomunni með kosningu á Fugli ársins 2021 og voru úrslitin kynnt á sumardaginn fyrsta.
Keppnin er haldin á vegum Fuglaverndar og er tilgangur hennar að vekja athygli á málefnum fugla í gamni og alvöru. Stefnt er að því að hún verði árviss viðburður.
Fuglavernd bárust fjölmargar vel rökstuddar tillögur frá almenningi og voru 20 fuglar valdir til að keppa um titilinn Fugl ársins 2021.
Frambjóðendur um titilinn Fugl ársins 2021
Fugl |
Kynningarsíður kosningastjóra |
Auðnutittlingur (Carduelis flammea) | Kosningastjóri: Guðni Sighvatsson Tíst auðnutittlings Auðnutittlingurinn á Instagram |
Grágæs (Anser anser) | Kosningastjóri: Kolbeinn Sæmundur Hrólfsson Tíst grágæsar Grágæsin á Instagram Grágæsin á Facebook #gragaesin |
Haförn (Haliaeetus albicilla) | Kosningastjóri: Ragna Gestsdóttir |
Heiðlóa (Pluvialis apricaria) | Kosningastjóri: Guðrún Jónsdóttir Heiðlóan á Facebook |
Himbrimi (Gavia immer) | Kosningastjóri: Eyþór Ingi Jónsson Vefsíða himbrimans Eyþór og himbrimi á Instagram |
Hrafn (Corvus corax) | Kosningastjóri: Hrefna Huld Helgadóttir #hrafn.inn |
Hrossagaukur (Gallinago gallinago) | Hrossagaukurinn týndi kosningastjóranum sínum einhvertsstaðar úti í móa og auglýsir eftir öðrum. Sækja um |
Jaðrakan (Limosa limosa) | Kosningastjóri: Steingerður Steinarsdóttir |
Kría (Sterna paradisea) | Kosningastjóri: Jóhanna Benediktsdóttir |
Lundi (Fratercula arctica) | Kosningastjóri: Sunna Dís Kristjánsdóttir með dyggri aðstoð 4. bekks Engidalsskóla Lundinn á Facebook |
Maríuerla (Motacilla alba) | Kosningastjóri: Hulda Signý Gylfadóttir með dyggri aðstoð 4. bekks Landakotsskóla |
Músarrindill (Troglodytes troglodytes) | Kosningastjóri: Snorri Valsson |
Óðinshani (Phalaropus lobatus) | Kosningastjóri: Fannar Sigurðsson |
Rjúpa (Lagopus muta) | Kosningastjóri: Rósanna Andrésdóttir og 3. bekkur Álftanesskóla Rjúpan á Facebook |
Sendlingur (Calidris maritima) | Kosningastjóri: Þórir Þórisson |
Sílamáfur (Larus fuscus) | Kosningastjóri: Bjarki Sigurðsson |
Skógarþröstur (Turdus iliacus) | Kosningastjóri: Halldór Bergmann |
Snjótittlingur/sólskríkja (Plectrophenax nivalis) | Kosningastjóri: Ísak Hugi Einarsson |
Stari (Sturnus vulgaris) | Kosningastjórar: Anna Margrét Jónsdóttir, Guðfinna Dís Sveinsdóttir og Bryndís Guðjónsdóttir Starinn á Instagram |
Svartþröstur (Turdus merula) | Kosningastjóri: Baldur Ó Svavarsson |
Spurt og svarað um keppnina um Fugl ársins
Má ég bara kjósa einn fugl?
Nei þú mátt kjósa allt að fimm fugla og raða þeim í sæti eftir því hver þér finnst að helst eigi að hreppa titilinn. Fuglarnir í sætum 2-5 verða þá þín varaatkvæði. Ef fuglinn sem þú setur í fyrsta sæti dettur út í fyrstu umferð í talningunni þá flyst atkvæði þitt yfir á næsta fugl sem þú valdir og svo koll af kolli.
Hvernig fer kosningin fram?
Til að kjósa Fugl ársins 2021 þarf að smella á hlekkinn hér til að opna rafrænt skráningareyðublað. Skrá þarf inn netfang, nafn og kennitölu til að atkvæðið teljist gilt. Einungis eitt atkvæði er leyft á hverja kennitölu, en ef kjósandi hefur ekki eigið netfang má senda inn atkvæði með netfangi einhvers úr fjölskyldunni. Þetta er gert til að sannreyna að þátttakendur séu raunverulegir og að hver kjósandi fái eitt gilt atkvæði. Netföngum og kennitölum verður eytt úr gögnunum þegar úrslit liggja fyrir og ekki notuð í neinum öðrum tilgangi en þeim að reyna að tryggja heiðarlega kosningu á Fugli ársins 2021. Nema auðvitað ef þátttakandi merkir sérstaklega við að vilja skrá sig í Fuglavernd eða á póstlista Fuglaverndar.
Hvernig virkar kosningakerfið?
Kosningakerfið sem notað er til að velja Fugl ársins mætti kalla varaatkvæðakerfi (e. Instant Runoff Voting System). Velja má allt að 5 frambjóðendur og raða þeim í röð eða sæti eftir því hverjir kjósendur vilja helst að hreppi titilinn. Ekki þarf að velja fugla í öll sætin en frjálst að velja færri fugla og atkvæði er gilt þó einn fugl sé valinn. Ekki má velja sama fugl í fleiri en eitt sæti.
Talning atkvæða fer þannig fram að í fyrstu umferð verður athugað hvort einhver fugl fái hreinan meirihluta sem fyrsta val kjósenda. Ef svo er þá er hann búinn að vinna titilinn. Ef ekki, þá dettur sá fugl út sem fæst atkvæði fékk í þeirri umferð sem 1. val kjósenda og atkvæði hans flytjast á þann fugl sem var 2. val og svo koll af kolli þar til einn fugl stendur uppi sem Fugl ársins 2021.
Get ég hvatt minn uppáhalds fugl í keppninni?
Já endilega! Ef þig langar að leggja þínum fugli lið geturðu sótt um að vera kosningastjóri fyrir hann ef hann er ekki þegar kominn með kosningastjóra. Þú getur líka notað kassamerkin #FuglArsins2021 #Fuglavernd á samfélagsmiðlunum til að hvetja fólk til að kjósa hann.
Hvenær standa kosningar um Fugl ársins 2021 yfir?
10.-20. mars – Forval fugla í lokakeppnina stendur yfir.
Frá 10. mars – 18. apríl – Opið fyrir umsóknir um stöðu kosningastjóra fyrir fugl.
1. apríl – Þeir 20 fuglar sem keppa um titillinn eru kynntir hér á síðunni ásamt kosningastjórum sínum.
9.-18. apríl – Æsispennandi kosning um Fugl ársins stendur yfir.
Sumardagurinn fyrsti 22. apríl – Fugl ársins 2021 kynntur með fjaðrafoki og látum.
Af hverju er verið að kjósa Fugl ársins?
Með kosningum á Fugli ársins vill Fuglavernd vekja athygli á málefnum fugla. Margar fuglategundir eru í hættu vegna mengunar, loftslagsbreytinga og eyðileggingar búsvæða. Sumir fuglar njóta ákveðinna óvinsælda vegna lífshátta sinna og veitir ekki af tækifæri til að reyna að bæta ímynd sína. Mest er þetta auðvitað til gamans gert meðan vorsins og farfuglanna er beðið í eftirvæntingu á útmánuðum 😊
Hvað get ég gert meira til að stuðla að verndun fugla og búsvæða þeirra?
Þú getur gert ýmislegt. Gerst félagi í Fuglavernd og tekið þátt í starfi félagsins.
Þú getur einnig styrkt starf Fuglaverndar með frjálsu framlagi HÉR.
________________________________
Fuglavernd naut liðsinnis Konunglegu bresku fuglaverndarsamtakanna RSPB og Forest and Bird á Nýja-Sjálandi við undirbúning verkefnisins. Hinir síðarnefndu hafa staðið fyrir kosningu á Fugli ársins á Nýja-Sjálandi um árabil.