Munið að gefa smáfuglunum í garðinum.
Þegar kalt er, vættu brauð og haframjöl í matarolíu. Olían er góð í frosti og gefur fuglunum aukna orku. Þurra brauðskorpu má einnig væta með vatni. Öll fita er vinsæl hjá fuglum á köldum vetrardögum.
Hér getur þú lesið meira um fóðrun garðfugla.
Á skrifstofu Fuglaverndar seljum við ýmis konar fóður fyrir fugla. Póstsendum hvert á land sem er. Skoðaðu vöruúrvalið.
Fuglafóður
- Kurlaður maís fyrir snjótittlinga (650 g) – 300 kr
- Sólblómafræ án hýðis (1 kg) – 600 kr
- Sólblómafræ með hýði (2 kg) – 1.200 kr
- Sólblómafræ án hýðis, sekkur (23 kg) – 9.000 kr