- This event has passed.
Plastgleði þín og plastsorg er raunveruleg
28.09.2017 @ 16:00 - 17:30
Frítt– Málþing um stöðu og lausnir á plastvandanum
Opið málþing í Háskóla Íslands um plastvandann og hvaða lausnir eru í sjónmáli. Málþingið er skipulagt af aðstandendum árvekniátaksins Plastlaus september í samstarfi við Námsbraut í umhverfis- og auðlindafræðum og Stofnun Sæmundar fróða við Háskóla Íslands. Fjallað verður um plastmengun í hafi og aðgerðir Evrópusambandsins gegn plastmengun, stöðu Íslands varðandi þennan málaflokk, örplast í fráveitum, endurvinnslumöguleika plasts, og loks hvaða úrræðum Íslendingar geta beitt til þess að sporna við ofgnótt plasts í umhverfinu.
Málþingið fer fram bæði á ensku og íslensku og er öllum opið og gjaldfrjálst. Boðið verður upp á léttar veitingar að dagskrá lokinni. Til að áætla megi fjölda gesta er nauðsynlegt að þátttakendur skrái sig á plastlausseptember.is.
Dagskrá:
- Plaststefna Íslands – Hólmfríður Þorsteinsdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun
- Örplast í fráveitu – Íris Þórarinsdóttur, tæknistjóri fráveitu hjá Veitum
- Endurvinnsla á plasti – Gyða Sigríður Björnsdóttir, sérfræðingur hjá Sorpu
- Leysum plastvandann – Dr. Rannveig Magnúsdóttir, verkefnastjóri frá Landvernd
- EU action to combat marine litter – Michael Mann, sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi
Fundarstjóri: Guðrún Pétursdóttir, forstöðumaður Stofnunar Sæmundar fróða.
Að loknum erindum verður opnað á spurningar og umræður úr sal.
Boðið verður upp á léttar veitingar að dagskrá lokinni.