Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Friðland í Flóa; fuglaskoðun og ganga á aðfangadagskvöldi Jónsmessu.

18.06.2021 @ 08:00 - 17:00

Friðland í Flóa; fuglaskoðun og ganga á aðfangadagskvöldi Jónsmessu.
Miðvikudag 23. júní 2021 kl.19.00 verður boðið upp á fuglaskoðun í Friðlandinu í Flóa og leiðsögumaður að þessu sinni er Anna Maria Lind Geirsdóttir starfsmaður Fuglaverndar.

Brottför er frá fuglaskoðunarhúsinu við bílastæðið í Friðlandinu

Fuglaskoðunin hefst kl. 19:00.
Tímalengd: 1-1,5 klt.
Nauðsynlegur fatnaður: Gúmmístígvél. Hlýr fatnaður.
Mikilvægur útbúnaður: Sjónauki.
Hámarksfjöldi er 20 manns.
Vinsamlega skráið ykkur með tölvupósti til fuglavernd@fuglavernd.is fyrir kl. 13 miðvikudag 23. júní.

Gera má ráð fyrir rúma klukkustundar göngu og stöður til að sjá, heyra og upplifa fuglalífið í Friðlandinu.

Hlýr fatnaður er t.d. tvær peysur undir vindheldum stakki jafnvel lopapeysa eða dúnúlpa. Húfa, vettlngar og ullarsokkar. Það er júní og sumar en getur orðið svalt á kvöldin.

Votlendisfuglar einkenna svæðið og eru bein tengsl við nálæg fuglarík svæði eins og fjöruna, Ölfusárós og Ölfusforir. Fuglalíf Friðlandsins í Flóa er sérstaklega auðugt og tegundaríkt á varptíma, en nærri 25 fuglategundir verpa þar að staðaldri. Einkennisfugl svæðisins er lómurinn.

Friðlandið í Flóa er votlendi sem hafist var handa við að endurheimta árið 1997 í samstarfi Fuglaverndar og sveitarfélagsins Árborgar. Lesa meira um Friðlandið í Flóa, gróður, dýralíf og starf Fuglaverndar á svæðinu.

Hér er á ferðinni frábært tækifæri fyrir alla jafnt einstaklinga og fjölskyldur að upplifa lifandi náttúru.
Velkomin og aðgangur ókeypis.

Vinsamlega skráið ykkur með tölvupósti til fuglavernd@fuglavernd.is fyrir kl. 13 miðvikudag 23. júní

Details

Date:
18.06.2021
Time:
08:00 - 17:00
Event Category: