Kjóaungi ©Sölvi Rúnar Vignisson

Hvert fara kjóarnir?

Kjóinn er einn af einkennisfuglum Suðurnesja og einn af okkar áhugaverðustu farfuglum. Kjóinn hefur oft haft slæmt orð á sér fyrir að ræna ungum og eggjum annarra fugla en þegar hann er skoðaður í réttu ljósi sést hve ótrúlegt lífshlaup hvers einstaklings er.

Þekkingarsetur Suðurnesja og Háskóli Íslands hafa stundað rannsóknir á farháttum kjóa frá árinu 2013. Í þessum fyrirlestri mun Sölvi Rúnar Vignisson kynna líf- og farhætti íslenska kjóans en fyrir þessa rannsókn var hið ótrúlega far hans lítið þekkt.