Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Garðfuglakönnun hefst 24. október 2021

24.10.2021 - 30.03.2022

Svartþröstur. Ljsm. Sigurður Ægisson

Hin árlega garðfuglakönnunn hefst sunnudag 24. október, fyrsta sunnudag eftir upphaf vetrar.

Tilgangur garðfuglakönnunarinnar er að fá upplýsingar um fuglategundir og fjölda fugla sem halda sig í görðum á Íslandi yfir vetrarmánuðina. Jafnframt er tilgangurinn að hvetja fólk til að líta á fuglalífið í sínu nánasta umhverfi. Það skiptir ekki máli þó fólk byrji aðeins seinna að telja eða hætti fyrr – aðalatriðið er að vera með. Allt fuglaáhugafólk er hvatt til að kynna sér efnið og taka þátt.

Þátttakendur eru nú hvattir til þess að fóðra fugla á vinnustaðnum. Í mötuneytum vinnustaða fellur til ýmislegt sem má nota til þess að fóðra fugla í stað þess að henda í ruslið! Það er þannig hægt að sporna gegn matarsóun með því að fóðra fugla, hvort sem er í garðinum heima eða á vinnustaðnum.

Lesa meira um fóðrun garðfugla, fuglagarðinn og garðfuglategundir.

Garðfuglakönnun – eyðublöð
Þrenns konar útgáfur verða af eyðublöðunum, svo þú velur hvað þér hentar best hvort sem það er að skrá í tölvu eða prenta út og skrá í höndunum.

Garðfuglakönnun skráning  2021-2022 .pdf

Garðfuglakönnun skráning  og leiðbeiningar 2020-2021

Garðfuglakönnun vikutalningarblað.pdf

Garðfuglakönnun lýkur síðan laugardaginn 23. apríl 2022.

Niðurstöður athugunar
Að loknum athugunartíma má senda niðurstöðu á netfangið gardfugl@gmail.com eða í pósti merkt: Fuglavernd, Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík.

Details

Start:
24.10.2021
End:
30.03.2022