Um 90% íslenskra varpfugla, farfugla og vetrargesta byggja afkomu sína á votlendi, sem gerir það að mjög mikilvægu búsvæði. Fjölskrúðugt fuglalíf er einn besti mælikvarðinn sem hægt er að leggja á heilbrigði vistkerfa og er þess vísir að þar er mikill líffræðilegur fjölbreytileiki.
Á Íslandi er votlendi:
- 9.000 km2
- Um 20% af grónu flatarmáli landsins
- Um 50% þess hefur verið raskað
- Allt að 70% á láglendi raskað
- Lengd skurða um 33.000 km
en 72% af losun gróðurhúsalofttegunda kemur frá framræstu votlendi.
Votlendissjóðurinn
Fuglavernd er bakhjarl Votlendissjóðsin sem stefnir að endurheimt votlendis í samvinnu við fjölmarga aðila, en staðreyndin er sú að enn er framræst meira en það sem er endurheimt.
Eyþór Eðvarðsson, fyrrverdandi forsvarsmaður Votlendissjóðsins flutti erindi á aðalfundi Fuglaverndar þann 12. apríl 2018.
Meira um votlendi
Erindi Sunnu Áskelsdóttur á Hrafnaþingi Náttúrufræðistofnunar Íslands um endurheimt votlendis hjá Landgræðslunni 31. janúar 2018
Mikilvæg fuglasvæði – Votlendi og önnur svæði – Náttúrufræðistofnun Íslands 2017
Endurheimt votlendis – Aðgerðaáætlun – Samráðshópur um endurheimt votlendis 7/3/2016
Ráðstefna um vernd og endurheimt votlendis – Svenja Auuhage 12. maí 2010