Lýsing
Örninn er meðal sjaldgæfustu varpfugla landsins en talið er að hér séu um 70 fullorðin pör, auk ungfugla. Fram á seinni hluta 19. aldar var örninn miklu algengari og varp þá í öllum landshlutum en nú er útbreiðslan bundin við vestanvert landið.
Vöxtur og viðkoma arnarstofnsins er lítil, þrátt fyrir alfriðun í 100 ár, en þó hefur örnum fjölgað hægt og bítandi í kjölfar þess að eitrun fyrir refi var bönnuð árið 1964.