Lýsing
Kattakragi frá ©Birdsbesafe. Kragarnir eru litríkir með endurskinsrönd. Litavalið hefur ákvarðast af notkun katta og reynslu framleiðandanna af virkni kraganna. Litirnir auðvelda fuglum að koma auga á köttinn og getur dregið verulega úr líkum á því að hann geti veitt þá.
Kattakragi gerir köttinn mun meira áberandi og því verður kötturinn einnig öruggari þar sem bílar eru á ferðinni. Með kattakraga um hálsinn þá minnka likur á heppnuðum veiðum katta um 87% sem er talsvert.
Kattakragarnir eru framleiddir í Vermont, Bandaríkjunum af ©Birdsbesafe, fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu kattakraga. Þeir eru úr bómullarefni og má þvo. Hönnunin byggir á rannsóknum á litaskynjun fugla og veiðigetu katta.
Kraginn er þræddur upp á hálsól kattarins en hún fylgir ekki með kraganum. Hálsólar má kaupa í öllum gæludýrabúðum.