Hreiðurhús – Þrestir

7.000 kr.

Hreiðurhús eða varpkassi sem hentar fyrir skógarþresti og svartþresti.

Ekki til á lager

Flokkur: Merkimiðar: , ,

Lýsing

Hreiðurhús eða varpkassi sem hentar fyrir skógarþresti og svartþresti.

Þetta fuglahús á að setja upp á skjólgóðum stað annað hvort í tré eða á sumarbústað.  Sé húsið sett í tré eru grenitré best en þéttir hávaxnir runnar eða þétt lauftré geta hentað vel fyrir fuglahúsið.

Á húsvegg er gott að festa húsið upp þar sem klifurjurtir s.s. bergflétta eða bergsóley vaxa.

Húsið á að setja upp 2-3 m hæð frá jörð.

Verpi þrestir í húsið skal fjarlægja hreiðrið strax eftir að ungarnir hafa yfirgefið hreiðrið vegna þess að þrestir kjósa að gera sér nýtt hreiður en nota aldrei sama hreiðrið tvisvar.  Þrestir geta orpið 2-3 sinnum á sumri.

Fuglahús á ekki að setja upp þar sem mikið er um ketti.

Fuglahús Fuglaverndar eru smíðuð á Litla Hrauni.

Frekari upplýsingar

Þyngd 1.000 g
Ummál 22 × 20 × 39 cm