Lýsing
Kattakragi hjálpar fuglum að koma auga á ketti
Þessi gerð er 2 cm víðari en hinir hefðbundu kattakragar frá ©Birdsbesafe og er ætlaðir síðhærðum köttum.
Kragarnir eru litríkir með endurskinsrönd. Litirnir auðvelda fuglum að koma auga á köttinn og getur dregið verulega úr líkum á því að hann geti veitt þá. Með kattakraga um hálsinn þá minnka líkur á því að kötturinn veiði fugl um 87% sem er talsvert.
Kattakragi gerir köttinn mun meira áberandi og því verður kötturinn einnig öruggari þar sem bílar eru á ferðinni.
Kraginn er þræddur upp á hálsól kattarins en hún fylgir ekki með kraganum. Hálsólar má kaupa í öllum gæludýrabúðum.
Kattakragarnir eru framleiddir í Vermont, Bandaríkjunum af ©Birdsbesafe, fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu kattakraga. Þeir eru úr bómullarefni og má þvo. Hönnunin byggir á rannsóknum á litaskynjun fugla og veiðigetu katta.