Lýsing
Tímaritið Fuglar: Örn, lóa, helsingi, lómur, spói og rjúpa
Tímaritið Fuglar sem Fuglavernd gefur út er fullt af fróðleik og glæsilegum ljósmyndum af fuglum. Þar er hægt að fræðast um fleiri fugla en lóu, þröst og endur á tjörninni.
Við setjum örn, lóu, rjúpu og helsingja saman í pakka. Lóan er orðin þekkt sem fugl ársins 2021. Haförnin er ástæðan fyrir því að Fuglaverndarfélag Íslands var stofnað. Helsingin hefur gert garðinn frægan í Landanum á RÚV þar sem fræðst var um rannsóknir á honum. Rjúpan er landsþekkt vegna sveiflu í stofnstærð.
Sex tímarit: Fuglar 11: 2017, Fuglar 10: 2015, Fuglar 9: 2013, Fuglar 8: 2011 og Fuglar 7: 2010.Fuglar 6: 2009
Eintak af bókinni “Væri ég fuglinn frjáls” eftir Jóhann Óla Hilmarsson, sem er fyrirtaks leiðsögn fyrir börn og fullorðna sem eru að stíga sín fyrstu skref í fuglaskoðun.
Tímaritin sex innihalda greinarum fugla eftir fólk sem skoðar fugla og/eða stundar rannsóknir á þeim. Frábærar ljósmyndir af fuglum eftir nokkra af okkar fremstu fuglaljósmyndurum skreyta tímaritin. Þetta getur kveikt á fuglaskoðunarbakteríunni hjá hverjum sem er.
Tilboð; 6 blöð saman af FUGLUM. 3000 krónur: Örn, helsingi, rjúpa, lómur, spói og lóa: Sex frábær tímarit:
Fuglar 6: 2009 með spóa á forsíðunni
Fuglar 7: 2010 með helsingja á forsíðunni
Fuglar 8: 2011 með rjúpu á forsiðunni
Fuglar 9: 2013 með haförn á forsíðunni
Fuglar 10: 2015 með heiðlóu á forsíðunni
Fuglar 11: 2017 með lóm á forsíðunni.
Þar að auki 1 eintak af bókinni “Væri ég fuglinn frjáls”.