Lýsing
Tímaritið Fuglar: Örn, lóa, helsingi og rjúpa
Tímaritið Fuglar sem Fuglavernd gefur út er fullt af fróðleik og glæsilegum ljósmyndum af fuglum. Þar er hægt að fræðast um fleiri fugla en lóu, þröst og endur á tjörninni.
Við setjum örn, lóu, rjúpu og helsingja saman í pakka. Lóan er orðin þekkt sem fugl ársins 2021. Haförnin er ástæðan fyrir því að Fuglaverndarfélag Íslands var stofnað. Helsingin hefur gert garðinn frægan í Landanum á RÚV þar sem fræðst var um rannsóknir á honum. Rjúpan er landsþekkt vegna sveiflu í stofnstærð.
Fjögur tímarit: Fuglar 10: 2015, Fuglar 9: 2013,Fuglar 8: 2011 og Fuglar 7: 2010. Eintak af bókinni “Væri ég fuglinn frjáls” eftir Jóhann Óla Hilmarsson, sem er fyrirtaks leiðsögn fyrir börn og fullorðna sem eru að stíga sín fyrstu skref í fuglaskoðun.
Tímaritin fjögur geyma urmul fróðleiks eftir fólk sem skoðar fugla og/eða stundar rannsóknir á þeim. Frábærar ljósmyndir af fuglum eftir nokkra af okkar fremstu fuglaljósmyndurum skreyta tímaritin. Þetta fernt getur kveikt í fuglaskoðunarbakteríunni hjá hverjum og einum.