Lýsing
Væri ég fuglinn frjáls – fyrstu skrefin í fuglaskoðun.
Bókin er skrifuð fyrir 4.-5. bekkinga, en höfðar þó til allra sem eru að stíga sín fyrstu skref í þessu skemmtilega og fræðandi áhugamáli, jafnt heima sem í skóla. Myndir af algengustu fuglum Íslands eru á kápusíðum en það gerir ungum og áhugasömum fuglaskoðurum kleift að greina þá fugla sem þeir sjá.
Höfundur: Jóhann Óli Hilmarsson
Eftirtaldir styrktu útgáfuna:
- Umhverfis-og auðlindaráðuneytið
- Barnavinafélagið Sumargjöf
- Náttúruverndarsjóður Pálma Jónssonar
- Valitor – Samfélagssjóður
- Landsbanki Íslands – Samfélagssjóður
44 bls. auk ljósmynda á kápusíðum sem fletta má út.