Lýsing
Kattakragi hjálpar fuglum að koma auga á ketti – eykur öryggi katta á götum í skammdegi.
Kattakragi rendur og doppur frá ©Birdsbesafe. Kragarnir eru litríkir með endurskinsrönd. Litirnir auðvelda fuglum að koma auga á köttinn og getur dregið verulega úr líkum á því að hann geti veitt þá. Með kattakraga um hálsinn þá minnka líkur á því að kötturinn veiði fugl um 87% sem er talsvert.
Kattakragi gerir köttinn mun meira áberandi og því verður kötturinn einnig öruggari þar sem bílar eru á ferðinni sérstaklega í skammdeginu þegar ljósgeisli bílsins fellur á endurskinsrönd kragans.
Kraginn er þræddur upp á hálsól kattarins en hún fylgir ekki með kraganum. Hálsólar má kaupa í öllum gæludýrabúðum.
Kattakragarnir eru framleiddir í Vermont, Bandaríkjunum af ©Birdsbesafe, fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu kattakraga. Þeir eru úr bómullarefni og má þvo. Hönnunin byggir á rannsóknum á litaskynjun fugla og veiðigetu katta.
Rannsókn um virkni kattakraganna fuglum í hag.