Lýsing
Hreiðurhús eða varpkassi sem hentar fyrir stara.
Líflegur fugl sem sest gjarnan að í fuglahúsum. Húsið má hengja upp í tré eða á húsvegg.
Best er að hafa húsið frekar hátt uppi í um það bil 4-5 m hæð.
Starahúsið á ekki að vera þar sem daglegur umgangur manna eða gæludýra er beint fyrir neðan húsið. Starar verpa gjarnan tvisvar sinnum á sumri.
Fuglahús á ekki að setja upp þar sem að kettir ná til.
Fuglahús Fuglaverndar eru smíðuð á Litla Hrauni.