Fóðurhús fyrir fugla

8.500 kr.

Hæð 26 cm. Breidd með þakskeggi 31 cm. Lengd með þakskeggi 32 cm.

Á lager

Lýsing

Fóðurhús eru ætluð til að hýsa fuglafóður, þar sem fuglum er gefið fóður reglulega. Þakið skýlir fóðrinu gegn vatni og vindum, en fuglarnir eiga gott aðgegni með opnum hliðum.

Fóðurhús skal festa upp í nægilegri hæð (í tré, á staur, á vegg) til þess að kettir eigi ekki greiðan aðgang að þeim.

Ein umferð af viðarolíu hefur verið borin á húsið en gott er að bætta einni við. Gott að skafa reglulega af húsbotninum með t.d. kíttisspaða. Að vori þegar fóðrun vetrarins lýkur er fyrirtak að þrífa húsið með vatni og uppþvottalegi, láta þorna og síðan bera á viðarolíu.

Fóðurhúsin eru smíðuð fyrir Fuglavernd á Litla Hrauni.

 

 

Frekari upplýsingar

Þyngd 1.200 g
Ummál 32 × 32 × 26 cm