Lýsing
Fóðrari fyrir sólblómafræ og fræblöndur.
Stór, 1 L með fjórum fóðurgötum og 36 cm á hæð, 50 cm með topplykkju.
Fóðrari fyrir fuglafóður sem er mjög auðvelt að fylla á og halda hreinum. Hægt er að fjarlægja alla íhluti án þess að nota verkfæri. Í fóðrarann má setja fræblöndur og sólblómafræ með eða án hýðis.
Mjög auðvelt er að losa fræ sem verða eftir í fóðraranum. Í hvert sinn sem fyllt er á er botninn snúinn af og þannig er losað og fyllt á. Til að hreinsa fóðrarann er hægt að taka hann allan í sundur, pinninn er togaður úr og allir íhlutir losna. Íhlutir eru úr plasti.
Aukahlutir: Hægt er að fá fóðurdisk undir fóðrarann til að bæta nýtingu á fuglafóðrinu.