BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Fuglavernd.is - ECPv6.16.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://fuglavernd.is
X-WR-CALDESC:Events for Fuglavernd.is
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260613T140000
DTEND;TZID=UTC:20260613T160000
DTSTAMP:20260615T101047
CREATED:20260519T150804Z
LAST-MODIFIED:20260519T150804Z
UID:28681-1781359200-1781366400@fuglavernd.is
SUMMARY:Fuglaskoðun við Sogið
DESCRIPTION:Fuglaskoðun við Sogið í samstarfi við Alviðru. \nLaugardaginn 13. júní kl. 14:00 mun Tandri Gauksson félagi  í Fuglavernd leiða áhugasama og líta og hlusta eftir fuglum við Sogið  undir Ingólfsfjalli. \nTekið verður á móti áhugasömum fuglavinum á bílastæði Alviðru.  \nGengið verður af stað kl. 14 niður að Sogi og hlustað og skimað eftir fuglum.  Gangan er létt en hafa verður í huga\, að við fuglaskoðun er mikið staðið\,  hlustað og horft\, og því mikilvægt að vera vel klædd. Fuglaskoðunin varir í  um 2  klukkutíma.  \nGott er að vera í stígvélum eða góðum gönguskóm. \nEftir fuglaskoðun býður Landvernd upp kaffi\, kakó og með því á bænum Alviðru og vað sjálfsögðu verður spjallað um fugla. Hægt verður að skoða uppstoppaða fugla sem eru geymdir í bænum.  \n13:30 Mæting við Alviðru. \n14:00 Fuglaskoðun hefst.  \n16: 00 Kaffi\, kakó og spjall \nGott að hafa með sér: Sjónauka.  \nMunið að vera klædd eftir veðri. \nHeimasíða Alviðru \nAlviðra er umhverfisfræðsusetur  Landverndar norðan Selfoss. Beygt til norðurs af Suðurlandsvegi á Biskupstungnabraut og eknir um 6 km þar til komið er að vegamótum og beygt til vinstri á Grafningsveg og aftur til vinstri á heimreið Alviðru.  Ef þið hafið ekið yfir brúna á Soginu þá eruð þið komin of langt. \n \nSpói\, Numenius phaeopus. Ljósmynd Sindri Skúlason.\n 
URL:https://fuglavernd.is/vidburdur/fuglaskodun-vid-sogid/
LOCATION:Alviðra
CATEGORIES:Fuglaskoðun
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fuglavernd.is/wp-content/uploads/2026/05/Vala-fridriks-sogid-merkt.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260609T183000
DTEND;TZID=UTC:20260609T203000
DTSTAMP:20260615T101047
CREATED:20260302T140825Z
LAST-MODIFIED:20260507T115438Z
UID:22672-1781029800-1781037000@fuglavernd.is
SUMMARY:Fuglaskoðun í Friðlandi í Flóa
DESCRIPTION:Þriðjudaginn 9. júní verður boðið upp á fuglaskoðun í Friðlandinu í Flóa og leiðsögumaður að þessu sinni er Gunnlaugur Þráinsson\, viðskiptafræðingur\, leiðsögumaður\, fuglaskoðari og félagi í Fuglavernd.\nGengið verður frá fuglaskoðunarhúsinu við bílastæðið í Friðlandinu \nFuglaskoðunin hefst kl. 18:30 \nTímalengd: 1-2 klt. \nNauðsynlegur fatnaður: Gúmmístígvél og hlýr fatnaður. \nMikilvægur útbúnaður: Sjónauki. \nHámarksfjöldi er 15 manns. \nVinsamlega skráið ykkur með tölvupósti til fuglavernd@fuglavernd.is fyrir kl. 13 mánudag 8. júní. \nNánari upplýsingar um svæðið og hvar það er staðsett norðan Eyrarbakka. \n  \nGera má ráð fyrir rúmri klukkustund í göngu og stöður til að sjá\, heyra og upplifa fuglalífið í Friðlandinu. \nÞað er júní og sumar en getur orðið svalt á kvöldin. Hlýr fatnaður og gúmmístígvél eru lykilatriði til að njóta göngunnar. Hlýr fatnaður er t.d. tvær peysur undir vindheldum stakki jafnvel lopapeysa eða dúnúlpa. Húfa\, vettlingar og ullarsokkar. Ef engin eru stígvélin þá fer maður í gönguna á ullarsokkum og sandölum eða skóm sem mega blotna. \nVotlendisfuglar einkenna svæðið og eru bein tengsl við nálæg fuglarík svæði eins og fjöruna\, Ölfusárós og Ölfusforir. Fuglalíf Friðlandsins í Flóa er sérstaklega auðugt og tegundaríkt á varptíma\, en nærri 25 fuglategundir verpa þar að staðaldri. Einkennisfugl svæðisins er lómur. \nLómur með unga. Ljósmynd: Sindri Skúlason.\nFriðlandið í Flóa er votlendi sem hafist var handa við að endurheimta árið 1997 í samstarfi Fuglaverndar og sveitarfélagsins Árborgar.  Lesa meira um Friðlandið í Flóa\, gróður\, dýralíf og starf Fuglaverndar á svæðinu. \nHér er á ferðinni frábært tækifæri fyrir alla jafnt einstaklinga og  fjölskyldur að upplifa lifandi náttúru. \nAllir velkomnir og aðgangur ókeypis. \nVinsamlega skráið ykkur með tölvupósti til fuglavernd@fuglavernd.is fyrir kl. 13 mánudag 8. júní. \n 
URL:https://fuglavernd.is/vidburdur/fuglaskodun-i-fridlandi-i-floa-3/
LOCATION:Friðlandið í Flóa\, Floi bird reserve\, Ölfus\, 816\, Iceland
CATEGORIES:Fuglaskoðun
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fuglavernd.is/wp-content/uploads/2022/06/Fuglasko├░un-Fri├░land-Flo╠ua-GLP-03-Large-e1655979581170.jpeg
ORGANIZER;CN="Fuglavernd":MAILTO:fuglavernd@fuglavernd.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260606T100000
DTEND;TZID=UTC:20260606T130000
DTSTAMP:20260615T101047
CREATED:20260529T115811Z
LAST-MODIFIED:20260529T115924Z
UID:28720-1780740000-1780750800@fuglavernd.is
SUMMARY:Canondagur í Friðlandi í Flóa
DESCRIPTION:Prófaðu Canon ljósmyndabúnað í Friðlandinu í Flóa\nÁ viðburðinum gefst Canon notendum kostur á að prófa úrval af Canon EOS R ljósmyndabúnaði\, m.a. langar aðdrátttarlinsur fyrir fuglaljósmyndun\, landslagslinsur\, macro linsur o.fl. við náttúrulegar aðstæður. Við mælum þó með því að þáttakendur mæti einnig með eigin Canon myndavélar. \nAðeins 30 sæti eru í boði. \nVið hvetjum þáttakendur til að sýna varkárni og aðgát. Mikilvægt er að virða slóða / stíga og fara sér hægt í kringum fuglalífið í Friðlandinu. Varp er hafið og því er mikilvægt að gengið sé varlega um svæðið – það er ekki gott ef lómurinn þarf að víkja af hreiðri í langan tíma. \nHalldór Jón Garðarsson\, vörustjóri Canon hjá Ofar\, Kristján U. Kristjánsson\, áhugaljósmyndari\, og Bernhard Kristinn\, atvinnuljósmyndari\, verða á staðnum til að lána út búnað og veita góð ráð. \nGert er ráð fyrir því að fólk komi sér sjálft á staðinn. \nNauðsynlegt er að skrá sig. \n  \nHér eru nánari upplýsingar og hægt að skrá sig.
URL:https://fuglavernd.is/vidburdur/canondagur-i-fridlandi-i-floa/
CATEGORIES:Fuglaskoðun
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fuglavernd.is/wp-content/uploads/2026/05/Lomsungarrax-2-1.jpg
ORGANIZER;CN="Ofar":MAILTO:ofar@ofar.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260604T190000
DTEND;TZID=UTC:20260604T200000
DTSTAMP:20260615T101047
CREATED:20260529T113636Z
LAST-MODIFIED:20260604T143044Z
UID:28704-1780599600-1780603200@fuglavernd.is
SUMMARY:Augnablik á flugi - myndasýning
DESCRIPTION:Verið velkomin á \,\,Augnablik á flugi”\n\nCanon og Ofar í samstarfi við Fuglavernd standa fyrir afar spennandi viðburði fimmtudaginn 4. júní þar sem ljósmyndararnir Ragnar Axelsson\, RAX\, og Þorfinnur Sigurgeirsson munu sýna eigin ljósmyndir af fuglum og segja sögurnar á bak við þær. \nRAX hefur í yfir 40 ár ljósmyndað fólk\, dýr og landslag á norðurslóðum og notað fugla sem mikilvæga þætti í sínum landslagsmyndum. Á viðburðinum mun hann deila slíkum ljósmyndum og segja frá mikilvægi þeirra. \nÞorfinnur Sigurgeirsson\, grafískur hönnuður og myndlistarmaður\, hefur síðustu níu ár helgað sig fuglaskoðun og fuglaljósmyndun hérlendis og erlendis. \nViðburðurinn fer fram í Ofar\, Borgartúni 37. Húsið opnar kl.19:00 þar sem áhugasamir geta skoðað úrval af Canon EOS R myndavélum og RF linsum. Kynningarnar hefjast kl. 19.30. \nÓkeypis er á viðburðinn en nauðsynlegt er að skrá sig. \nHér má finna nánari upplýsingar um viðburðinn þar sem hægt að skrá sig. \n  \n\n			\n	Lómsungar. Ljósmyndari Ragnar Axelsson.Lómsungar. Ljósmyndari Ragnar Axelsson.Skúmur. Ljósmyndari Ragnar Axelsson.Skúmur. Ljósmyndari Ragnar Axelsson.Skógarþröstur. Ljósmyndari Þorfinnur Sigurgeirsson.Skógarþröstur. Ljósmyndari Þorfinnur Sigurgeirsson.Örn. Ljósmyndari Þorfinnur Sigurgeirsson.Örn. Ljósmyndari Þorfinnur Sigurgeirsson.Flórgoðar. Ljósmyndari Þorfinnur Sigurgeirsson.Flórgoðar. Ljósmyndari Þorfinnur Sigurgeirsson.
URL:https://fuglavernd.is/vidburdur/augnablik-a-flugi-myndasynining/
LOCATION:Ofar salurinn\, Borgartún 37\, Reykjavík\, 105\, Iceland
CATEGORIES:Myndasýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fuglavernd.is/wp-content/uploads/2026/05/dc623fa1-d050-4444-9b09-c9295f2cc0f2.jpg
ORGANIZER;CN="Fuglavernd":MAILTO:fuglavernd@fuglavernd.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260509T100000
DTEND;TZID=UTC:20260509T110000
DTSTAMP:20260615T101047
CREATED:20260324T095117Z
LAST-MODIFIED:20260325T111444Z
UID:22725-1778320800-1778324400@fuglavernd.is
SUMMARY:Fuglaskoðun í Grasagarðinum Laugardal
DESCRIPTION:Fuglaskoðun í Grasagarðinum Laugardal\nFuglavernd í samstarfi við Grasagarðinn í Laugardal mun leiða fuglaskoðun um garðinn. \nBörn og fullorðnir eru velkomin að njóta fugla og vorlauka garðsins. Nánar auglýst síðar.
URL:https://fuglavernd.is/vidburdur/fuglaskodun-i-grasagardinum-laugardal/
LOCATION:Grasagarðurinn í Laugardal\, Grasagarður Reykjavíkur Laugardal\, Reykjavík\, 104\, Iceland
CATEGORIES:Fuglaskoðun
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fuglavernd.is/wp-content/uploads/2019/05/Svartthrostur22at.jpg
ORGANIZER;CN="Grasagar%C3%B0ur Reykjav%C3%ADkur":MAILTO:botgard@reykjavik.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260423T130000
DTEND;TZID=UTC:20260423T143000
DTSTAMP:20260615T101047
CREATED:20260316T110951Z
LAST-MODIFIED:20260316T110951Z
UID:22708-1776949200-1776954600@fuglavernd.is
SUMMARY:Græna gangan  sumardaginn fyrsta
DESCRIPTION:Sumardagurinn fyrsti 2026 verður tileinkaður náttúru Íslands á allan hátt! \nÞetta verður baráttudagur náttúrunnar sem byrjar með öflugri grænni göngu í anda kröfugöngunnar miklu 2013. Við viljum að allir landsmenn sem komast láti sig ekki vanta og gangi með okkur í miðbænum með græna fána á lofti. \n  \nÖll náttúruverndarhreyfingin í landinu og önnur félög vinna hörðum höndum að stærstu náttúrugöngu sem haldin hefur verið í fjölmörg ár. \nFólk safnast saman við Hallgrímskirkju kukkan 13:00 og við byrjum að ganga niður á Austurvöll klukkan 13:30. á Austurvelli tekur á móti okkur hvatning til þess að halda náttúrunni okkar sem hæst á lofti í öllum málum því hún á undir högg að sækja og hún þarf fleiri raddir. \nVið viljum að rödd náttúrunnar heyrist yfir holt og hæðir þennan dag og blási lífi í náttúruverndina á Íslandi inn í sumarið \n  \nÞetta er dagurinn sem allir ættu að taka frá!\nDagurinn sem við göngum fyrir náttúruna og framtíðina. \n 
URL:https://fuglavernd.is/vidburdur/graena-gangan-sumardaginn-fyrsta/
CATEGORIES:Dagur
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://fuglavernd.is/wp-content/uploads/2026/03/graena-gangan-23-april-2026-e1773659329156.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260419T153000
DTEND;TZID=UTC:20260419T163000
DTSTAMP:20260615T101047
CREATED:20260216T154833Z
LAST-MODIFIED:20260528T105756Z
UID:22622-1776612600-1776616200@fuglavernd.is
SUMMARY:Fuglaskoðun í Fossvogskirkjugarði
DESCRIPTION:Fuglaskoðun í Fossvogskirkjugarði undir leiðsögn Önnu Pratichi Gísladóttur\, líffræðinema og félaga í Fuglavernd. Þennan dag er opinn dagur í kirkjugarðinum og munu starfsmenn garðsins veita fólki ráðgjöf varðandi gróður. Fuglavernd mælir með að fólk mæti í hlýjum fötum\, sem eru aðeins of heit fyrir göngu en fín í létta göngu og stöður við fuglaskoðun. Gott að hafa með sér aukaflíkur í bakpoka/ tösku. Það eykur ánægjuna að hafa með sér sjónauka\, best er að vera með lítinn sjónauka sem nýtist í fuglaskoðun milli trjáa og leiða.
URL:https://fuglavernd.is/vidburdur/fuglaskodun-i-fossvogskirkjugardi/
CATEGORIES:Fuglaskoðun
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fuglavernd.is/wp-content/uploads/2019/05/Svartthrostur22at.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260416T163000
DTEND;TZID=UTC:20260416T190000
DTSTAMP:20260615T101047
CREATED:20260119T133142Z
LAST-MODIFIED:20260414T091254Z
UID:22556-1776357000-1776366000@fuglavernd.is
SUMMARY:Aðalfundur Fuglaverndar 2026 eingöngu fjarfundur
DESCRIPTION:Aðalfundur Fuglaverndar 2026\nStefnt er að því að halda aðalfund Fuglaverndar fyrir starfsárið 2025 fimmtudaginn 16. apríl nk. \nVegna óviðráðanlegra orsaka verður aðalfundurinn eingöngu haldinn sem fjarfundur að þessu sinni. \nHlekkur á fundinn er hér fyrir neðan: \nMicrosoft Teams meeting \nJoin: https://teams.microsoft.com/meet/37474216565174?p=uAMuMfIoeTQUhOjsAa \nMeeting ID: 374 742 165 651 74 \nPasscode: kW3Yp9WT \n  \nFrestur til að skila inn framboðum til stjórnarkjörs rann út 14. febrúar.\nÁ hverju ári ganga þrír úr stjórn félagsins og annað hvert ár gengur formaður úr stjórn. \nÍ ár eru þrjú sæti laus í stjórn\, en sæti formanns er ekki laust.  Sjá: Skrifstofa og stjórn. \nTillögum að breytingum á samþykktum félagsins þarf að skila inn fyrir 15. febrúar ár hvert. Sjá lög og siðareglur félagsins \n  \n 
URL:https://fuglavernd.is/vidburdur/adalfundur-2026/
LOCATION:Landvernd\, Guðrúnartún 1\, Reykjavík\, 105\, Iceland
CATEGORIES:Aðalfundur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fuglavernd.is/wp-content/uploads/2025/05/54498811820_5d5d44a1cf_c.jpg
ORGANIZER;CN="Fuglavernd":MAILTO:fuglavernd@fuglavernd.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260411T110000
DTEND;TZID=UTC:20260411T170000
DTSTAMP:20260615T101047
CREATED:20260119T134435Z
LAST-MODIFIED:20260407T150610Z
UID:22558-1775905200-1775926800@fuglavernd.is
SUMMARY:Vorverk í Vatnsmýrinni 2026
DESCRIPTION:Takið daginn frá því vorverk í Vatnsmýrinni í Reykjavík verða undir leiðsögn Ólafs Karls Nielsen\, mikilvirks fræðimanns á sviði vistfræði og fyrrum formanns Fuglaverndar og Ólafs Einarssonar\, líffræðings og kennara. Sjálfboðaliðar munu tína rusl og bæta aðgengi fugla að tjörnum í Vatnsmýrinni. Hádegismatur í boði Fuglaverndar og veitingastaðarins Plöntunnar. Norræna húsið býður okkur afnot af kaffistofu starfsmanna hússins. \n– Reykjavikurborg mun lána okkur hrífur og ruslatínur og sjá okkur fyrir trjágreinum til að leggja á tjarnarbakkana. Fuglavernd sér mannskapnum fyrir ruslapokum. \n-Það er spáð norðaustan átt og getur orðið svalt. Klæðið ykkur vel samkvæmt veðri. Vinnuvettlingar og stígvél eru þarfaþing. Þeir sem eiga vöðlur eru hvattir til að nota þær. Það er alltaf rusl í tjörnum og síkjum í Vatnsmýrinni sem erfitt er að góma frá bökkunum. \n-Vorverkin hefjast klukkan 11:00. Tínum rusl í tvo tíma og síðan er hádegismatur kl. 13:00.  Förum aftur út og klárum rest eftir mat. \n-Þeim mun fleiri sem mæta\, þeim mun betur vinnast verkin!  Allir félagar Fuglaverndar og aðrir velunnarar fugla og Vatnsmýrarinnar eru hjartanlega velkomnir í ruslatínslu og hádegismat. \n  \nNauðsynlegt er að skrá sig:\n– Vinsamlega skráið ykkur fyrir kl. 13:00 fimmtudag 9. apríl: fuglavernd@fuglavernd.is. \nSkráning er nauðsynlega svo það verði nægur matur handa öllum \nVið hittumst við Norræna húsið. \n\n			\n	\n \n 
URL:https://fuglavernd.is/vidburdur/vorverk-i-vatnsmyrinni-2026/
LOCATION:Norræna húsið\, Sæmundargata\, Reykjavík\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Hreinsun,Sjálfboðaliðar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fuglavernd.is/wp-content/uploads/2025/05/20250405_115155-scaled-e1748347851231.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260319T193000
DTEND;TZID=UTC:20260319T223000
DTSTAMP:20260615T101047
CREATED:20260305T121102Z
LAST-MODIFIED:20260316T095208Z
UID:22683-1773948600-1773959400@fuglavernd.is
SUMMARY:Wingspan spilakvöld
DESCRIPTION:Wingspan spilakvöld Fuglaverndar og Landverndar\nKomdu á Wingspan spilakvöld – 19.mars\, klukkan 19.30-22:30 á Loft Hostel\, Bankastræti 7 í Reykjavík. \nÞað verður spiluð grunnútgáfa spilsins (án expansion pakka) á nokkrum borðum í einu. Komið endilega með spil ef þið eigið því við eigum aðeins takmarkað magn. Stigahæstu spilarar kvöldsins hljóta veglega (fugla)vinninga! \nAllt fugla- og spilafólk er hjartanlega velkomið.\nSkráðu þig hér!  \nDæmi um vinninga:\n*Aðdáun foreldra þinna sem hafa aldrei skilið hvað þetta fugladæmi snýst eiginlega um.\n*kannski eitthvað annað ógeðslega kúl \nTakið með ykkur góðan spilafélaga\, fáið ykkur TILBOÐSBJÓR á barnum því það er kominn tími á fugladansinn! Athugið að það þarf ekki að kunna spilin til að mæta. Spilasérfræðingar verða á svæðinu frá báðum samtökum og leiða þá sem vilja í gegnum spilin. \nMá bjóða þér að gerast félagi  í Fuglavernd  og /eða Landvernd ? \n  \nEnglish\nIs the Black-headed Gull your favourite bird? Are you bursting from excitement from the fact that the migratory birds are FINALLY here? Do you need more bird-minded people in your life?\nJOIN US FOR A WINGSPAN TOURNAMENT AT LOFT HOSTEL ON MARCH 19TH!\nsign up here: https://landvernd.is/…/wingspan-mot-landverndar-og…/\nYou are hereby invited to the Icelandic Wingspan Tournament where we will be playing the standard edition of the board game Wingspan (no expansion packs) on multiple tables at once. \nTHE PLAYERS WITH THE MOST POINTS AT THE END OF THE TOURNAMENT SHALL RECEIVE GENEROUS (bird) PRIZES!\nlike…\n*The respect of your parents (finally) which have never quite understood this bird interest of yours.\n*maybe something really cool. \nPlease bring the game with you if you have it! we only have a few. \nAll bird and board game enthusiasts are welcome to Loft Hostel at Bankastræti 7\, 101 Reykjavík. Grab a friend and buy yourself a beer at the bar because it’s Wingspan time! If you are a beginner at Wingspan don’t worry because our experts will be there to guide you through the wonders of Wingspan. \nWould you like to be a member of Fuglavernd  and/or Landvernd? \n  \n 
URL:https://fuglavernd.is/vidburdur/wingspan-spilakvold/
CATEGORIES:Spilakvöld: Wingspan
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fuglavernd.is/wp-content/uploads/2024/05/wingspan.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260226T200000
DTEND;TZID=UTC:20260226T220000
DTSTAMP:20260615T101047
CREATED:20260119T094635Z
LAST-MODIFIED:20260226T143803Z
UID:22543-1772136000-1772143200@fuglavernd.is
SUMMARY:Af fílum\, flamingóum og furðufuglum
DESCRIPTION:Myndir frá Tanzaníu með Jóhanni Óla og Óla Einars\nÁ góu í fyrra héldu þeir félagar Jóhann Óli Hilmarsson og Ólafur Einarsson í ævintýraferð til Tanzaníu. Þeir lentu í Arusha og héldu svo í marga misþekkta þjóðgarða og friðlönd\, eins og Arusha\, Tarangire\, Manyara og Ndutu þjóðgarðana. Síðast en ekki síst Serengeti og hinn víðkunna Ngorongoro eldgíg sem er 90 km í þvermál. \nDýralíf er óvíða jafn mikið á nokkrum stað í heiminum en það er einstakt á þessum slóðum\, bæði hvað varðar spendýr og fuglar og ýmislegt fleira. Þeir félagar tóku aragrúa mynda af lífríkinu og munu þeir sýna úrval myndanna og segja ferðasöguna. \nMyndasýningin verður í sal Arion banka\, Borgartúni 19\, Reykjavík kl. 20:00-22:00 fimmtudaginn 26. febrúar. \nAðgangur að myndasýningum Fuglaverndar er innifalinn í félagsgjaldi\, einnig fyrir fjölskyldumeðlimi í fjölskylduaðild. \nAðrir áhugasamir borga 1.000 kr. \n  \n  \n\n			\n	Serengeti
URL:https://fuglavernd.is/vidburdur/af-filum-flamingoum-og-furdufuglum/
LOCATION:Sal Arionbanka\, Borgartún 19\, Reykjavík\, 105
CATEGORIES:Myndasýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fuglavernd.is/wp-content/uploads/2026/01/flamingoar-JOH.jpg
ORGANIZER;CN="Fuglavernd":MAILTO:fuglavernd@fuglavernd.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260221T120000
DTEND;TZID=UTC:20260221T170000
DTSTAMP:20260615T101047
CREATED:20260119T145823Z
LAST-MODIFIED:20260218T142225Z
UID:22561-1771675200-1771693200@fuglavernd.is
SUMMARY:5.000 tjaldar í Hvalfirði - fuglaskoðun
DESCRIPTION:Fuglaskoðun í Hvalfirði 21. febrúar 2026 kl. 12:00-17:00\nSólaruppprás: kl. 09:02\nHáfjara um kl. 15:00 \nEru 5.000 tjaldar í Hvalfirði?\nÞegar rannsakað var hversu margir tjaldar hefðu vetursetu á Vesturlandi þá kom í ljós að um 5.000 tjaldar dvelja veturlangt í Hvalfirði. Við stefnum því á að skoða tjalda og auðvitað aðra fugla. \nFarið verður á einkabílum \nHist verður í Mosfellsbæ eða þar sem hentar þátttakendum. Nánar um það þegar skráningu lýkur og vitað er hverjir koma og hvaðan.\nLagt af stað kl. 12:00 frá þeim stað sem sammælst verður um að hittast á. \nEf veður verður alveg ómögulegt\, þ.e. rok og rigning eða hríð\, fellum við niður ferðina. \nSkráning er nauðsynleg\nSkráið ykkur með nafni\, netfangi og farsímanúmeri fyrir kl. 15:00 fimmtudaginn 19. febrúar með því að senda póst á netfangið fuglavernd@fuglavernd.is eða í síma 562-0477. \n(Athugið að skilafrestur fyrir skráningu var ranglega skráðu sem fimmtudagur 15. febrúar í fréttabréfi. 19. febrúar er rétt dagsetning). \n\nVerið vel klædd þannig að þið getið staðið og skimað eftir fuglum án þessa að krókna.\nSjónauki er nauðsynlegt verkfæri í ferðinni. \nHafið með ykkur nesti.\n\nSkimað verður eftir fuglum við Grunnafjörð og Hvalfjörð\nHáfjara er í kringum kl. 15:00. \nÞeir sem eiga  ekki bíl munu væntanlega geta fengið far með öðrum. \nFararstjóri verður Vala Friðriksdóttir\, líffræðingur og félagi í Fuglavernd\, Helga Garðarsdóttir félagi í Fuglavend og Anna-María Lind starfsmaður á skrifstofu Fuglaverndar.
URL:https://fuglavernd.is/vidburdur/5000-tjaldar-i-hvalfirdi-fuglaskodun/
CATEGORIES:Fuglaskoðun
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fuglavernd.is/wp-content/uploads/2025/01/Tjaldur-med-blaskel.-Ljosmyndari-Jonina-Gudrun-Oskarsdottir.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260123T080000
DTEND;TZID=UTC:20260126T170000
DTSTAMP:20260615T101047
CREATED:20251201T154206Z
LAST-MODIFIED:20260119T144028Z
UID:22429-1769155200-1769446800@fuglavernd.is
SUMMARY:Garðfuglahelgi janúar 2026
DESCRIPTION:Garðfuglahelgi 23. – 26. janúar 2026.\n  \nFuglavernd hvetur allt fólk frá fjöru til fjalls  sem hefur aðgang að garði að taka þátt!\nGarðfuglahelgi verður 23. – 26. janúar næstkomandi. Þá teljum við fugla í garði. Talið er í einn dag í einn klukkutíma. Um fjóra daga er að velja\, fer eftir veðri og skyggni hvaða dagur verður fyrir valinu hjá hverjum og einum. \nUpplýsingar um garðfuglahelgina og eyðublöð \nSömu helgi verður talið á Bretlandseyjum (Big Garden Count) \, Noregi (Hagefugletelling) \, Svíþjóð (Vinterfåglar inpå knuten) og í Finnlandi ( Pihabongaus / Gårdsplanskrysset). Í Bandaríkjunum (Great Backyard Bird Count) er talið í febrúa og í Austurríki (Stunde der Wintervögel)  í byrjun janúar. \nVið erum sem sagt ekki ein í heiminum  um að telja garðfugla. \n  \n  \n 
URL:https://fuglavernd.is/vidburdur/gardfuglahelgi-januar-2026/
CATEGORIES:Garðfuglahelgi
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fuglavernd.is/wp-content/uploads/2025/01/grathrostur-epli-Orn-Oskars-gardfuglahelgi-2025.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251202T180000
DTEND;TZID=UTC:20251202T210000
DTSTAMP:20260615T101047
CREATED:20251120T120102Z
LAST-MODIFIED:20251120T120102Z
UID:22407-1764698400-1764709200@fuglavernd.is
SUMMARY:Vetrarfuglatalning námskeið 2. desember 2025
DESCRIPTION:Vetrarfuglatalning – námskeið 2025\n  \n \n  \nÁ vegum Fuglaverndar og Náttúrufræðistofnunar\nHvar og hvenær\n  \nReykjavík: 2. desember kl. 18-21: Borgarbókasafn\, Menningarhús í Úlfarsárdal\, Úlfarsbraut 122-124\, 113 Reykjavík. Stað- og fjarnámskeið. \n                                                      Námskeiðið er ókeypis.\n\nTilgangur námskeiðsins\nHelsta markmið námskeiðsins er að kynna vetrarfuglatalningar fyrir áhugasömum svo tryggja megi nýliðun meðal talningafólks og þannig áframhaldandi vöktun á svæðum sem talin hafa verið lengi.\nFarið verður yfir fyrirkomulag talninga og helstu fuglategundir sem sjást við talningar. Sérstaklega verða gerð skil á þeim tegundum sem geta vafist fyrir fólki að greina á færi. \n  \nFyrirlesarar\n2. desember Reykjavík: Aldís Erna Pálsdóttir og Borgný Katrínardóttir\, fuglafræðingar \nUpplýsingar um fyrirlesarana má finna á vef Náttúrfræðistofnunar \n\nHvað er vetrarfuglatalning?\nSjötíu ár eru frá því byrjað var að telja fuga að vetrarlagi og er markmið talninganna að kanna fjölda og dreifingu einstakra tegunda í mismunandi landshlutum. Einnig nýtast gögnin til að meta stofnbreytingar hjá sumum tegundum. Fuglaáhugamenn hafa frá upphafi borið hitann og þungann af þessu starfi.\nNáttúrufræðistofnun hefur um langt skeið skipulagt fuglatalningar áhugamanna sem sinna þeim í sjálfboðavinnu um áramótin. Sú fyrsta var 21. desember 1952\, á stysta degi ársins\, og var þá talið á 10 svæðum og er enn talið á sumum þeirra. Þeim hefur fjölgað jafnt og þétt og nú er að jafnaði talið á yfir 200 svæðum árlega. Alls hefur verið talið á um 370 svæðum og eru einstakar talningar orðnar um sjö þúsund. Talningasvæðin eru dreifð um láglendi um allt land en flest eru við sjávarsíðuna þar sem flestra fugla er von á þessum árstíma. Samanlögð lengd strandlengjunnar innan talningarsvæðanna er um 1.800 km eða um þriðjungur af strönd Íslands ef hún er 5.000–6.000 km löng. Alla jafna er talið á milli jóla og nýárs ef það hittir á helgi án helgidaga\, annars snemma í janúar. Ekkert er því til fyrirstöðu að fleiri en einn telji hvert svæði\, vilji fólk skrá sig saman. \n  \nHæfnikröfur sem talningafólk þarf að uppfylla:\n1. Líkamlega fær um að ganga í misgóðu vetrarfæri með strandlengju en flest snið eru nokkrir kílómetrar og geta tekið 3-5 klukkustundir að telja\n2. Eiga sjónauka til að nota við talningar\n3. Grunnþekking á fuglum landsins og færni til að tegundagreina fugla í nokkurri fjarlægð\n4. Vera reiðubúin til að skuldbinda sig í að telja í einhver ár \n  \nVinsamlega skráið ykkur í netfangið fuglavernd@fuglavernd.is \nReykjavík: Fyrir kl. 14\, 2. desember. \nHér eru ýmsar upplýsingar um talningarnar sem og niðurstöður úr vetrarfuglatalningum
URL:https://fuglavernd.is/vidburdur/vetrarfuglatalning-namskeid-2-desember-2025/
CATEGORIES:Námskeið
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fuglavernd.is/wp-content/uploads/2025/11/Smyrill_SindriSkulason.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251127T180000
DTEND;TZID=UTC:20251218T210000
DTSTAMP:20260615T101047
CREATED:20251111T162411Z
LAST-MODIFIED:20251120T132647Z
UID:22375-1764266400-1766091600@fuglavernd.is
SUMMARY:Vetrarfuglatalning - námskeið 27. nóvember 2025
DESCRIPTION:Vetrarfuglatalning – námskeið 2025\n  \n \n  \nÁ vegum Fuglaverndar og Náttúrufræðistofnunar\nHvar og hvenær\nAkureyri: 27. nóvember kl. 18-21: Borgum\, Norðurslóð\, 600 Akureyri. Staðnámskeið. \nReykjavík: 2. desember kl. 18-21: Borgarbókasafn\, Menningarhús í Úlfarsárdal\, Úlfarsbraut 122-124\, 113 Reykjavík. Stað- og fjarnámskeið. \n                                                      Námskeiðið er ókeypis.\n\nTilgangur námskeiðsins\nHelsta markmið námskeiðsins er að kynna vetrarfuglatalningar fyrir áhugasömum svo tryggja megi nýliðun meðal talningafólks og þannig áframhaldandi vöktun á svæðum sem talin hafa verið lengi.\nFarið verður yfir fyrirkomulag talninga og helstu fuglategundir sem sjást við talningar. Sérstaklega verða gerð skil á þeim tegundum sem geta vafist fyrir fólki að greina á færi. \n  \nFyrirlesarar\n27. nóvember Akureyri: Sölvi Rúnar Vignisson\, fuglafræðingur\n2. desember Reykjavík: Aldís Erna Pálsdóttir og Borgný Katrínardóttir\, fuglafræðingar \nUpplýsingar um fyrirlesarana má finna á vef Náttúrfræðistofnunar \n\nHvað er vetrarfuglatalning?\nSjötíu ár eru frá því byrjað var að telja fuga að vetrarlagi og er markmið talninganna að kanna fjölda og dreifingu einstakra tegunda í mismunandi landshlutum. Einnig nýtast gögnin til að meta stofnbreytingar hjá sumum tegundum. Fuglaáhugamenn hafa frá upphafi borið hitann og þungann af þessu starfi.\nNáttúrufræðistofnun hefur um langt skeið skipulagt fuglatalningar áhugamanna sem sinna þeim í sjálfboðavinnu um áramótin. Sú fyrsta var 21. desember 1952\, á stysta degi ársins\, og var þá talið á 10 svæðum og er enn talið á sumum þeirra. Þeim hefur fjölgað jafnt og þétt og nú er að jafnaði talið á yfir 200 svæðum árlega. Alls hefur verið talið á um 370 svæðum og eru einstakar talningar orðnar um sjö þúsund. Talningasvæðin eru dreifð um láglendi um allt land en flest eru við sjávarsíðuna þar sem flestra fugla er von á þessum árstíma. Samanlögð lengd strandlengjunnar innan talningarsvæðanna er um 1.800 km eða um þriðjungur af strönd Íslands ef hún er 5.000–6.000 km löng. Alla jafna er talið á milli jóla og nýárs ef það hittir á helgi án helgidaga\, annars snemma í janúar. Ekkert er því til fyrirstöðu að fleiri en einn telji hvert svæði\, vilji fólk skrá sig saman. \n  \nHæfnikröfur sem talningafólk þarf að uppfylla:\n1. Líkamlega fær um að ganga í misgóðu vetrarfæri með strandlengju en flest snið eru nokkrir kílómetrar og geta tekið 3-5 klukkustundir að telja\n2. Eiga sjónauka til að nota við talningar\n3. Grunnþekking á fuglum landsins og færni til að tegundagreina fugla í nokkurri fjarlægð\n4. Vera reiðubúin til að skuldbinda sig í að telja í einhver ár \n  \nVinsamlega skráið ykkur í netfangið fuglavernd@fuglavernd.is\nAkureyri: Fyrir kl. 14\, 27. nóvember.\nReykjavík: Fyrir kl. 14\, 2. desember. \nHér eru ýmsar upplýsingar um talningarnar sem og niðurstöður úr vetrarfuglatalningum \n 
URL:https://fuglavernd.is/vidburdur/vetrarfuglatalning-namskeid/
CATEGORIES:Námskeið
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fuglavernd.is/wp-content/uploads/2025/11/Smyrill_SindriSkulason.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251031T093000
DTEND;TZID=UTC:20251031T170000
DTSTAMP:20260615T101047
CREATED:20251013T111515Z
LAST-MODIFIED:20251029T132037Z
UID:22209-1761903000-1761930000@fuglavernd.is
SUMMARY:Málþing um votlendi
DESCRIPTION:Fuglavernd býður þér á málþing þar sem eitt mikilvægasta og fjölbreyttasta vistkerfi landsins\, votlendi Íslands\, verður í brennidepli. \nÁ málþinginu verður stiklað á stóru um votlendi\, auk þess sem frætt verður um nýjustu rannsóknir og reynslu fólks sem vinnur að verndun og endurheimt votlendis. \n👉 Fjallað verður um fugla\, gróður\, jarðveg\, vatnafræði\, loftslag\, tækifæri sem felast í verndun og endurheimt votlendis og margt fleira! \n👉 Allir eru velkomnir – aðgangur ókeypis. \n📍 Norræna húsið\n📅 Föstudagur 31. október 2025\n🕤 Kl. 09:30–18:00 \n \n  \nKomdu og taktu þátt í samtalinu um framtíð votlendis á Íslandi! \n  \nERF er styrktaraðili málstofunnar.
URL:https://fuglavernd.is/vidburdur/malthing-um-votlendi-og-fugla/
LOCATION:Norræna húsið\, Sæmundargata\, Reykjavík\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Dagur,Fræðsluerindi
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fuglavernd.is/wp-content/uploads/2023/10/Graslendi_Votlendi_2_Laekur.jpg
ORGANIZER;CN="Fuglavernd":MAILTO:fuglavernd@fuglavernd.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251026T080000
DTEND;TZID=UTC:20260419T170000
DTSTAMP:20260615T101047
CREATED:20251009T151402Z
LAST-MODIFIED:20251009T151531Z
UID:22200-1761465600-1776618000@fuglavernd.is
SUMMARY:Garðfuglakönnun vetrarlangt 2025-26
DESCRIPTION:Nú fer að bresta á með garðfuglakönnun vetrarlangt.\nAllir sem hafa aðgang að garði þar sem hægt er að fylgjast reglulega með fuglum og gefa þeim fóður ef vill eru velkomnir til þátttöku. \nGarðfuglakönnun Fuglaverndar stendur yfir vetrartímann\, vanalega frá lokum október og fram í apríl þegar fer að vora. Garðfuglakönnunin hefur verið gerð árlega allt frá 1994. \nTilgangur garðfuglakönnunarinnar er að fá upplýsingar um fuglategundir og fjölda fugla sem halda sig í görðum á Íslandi yfir vetrarmánuðina. Jafnframt er tilgangurinn að hvetja fólk til að líta á fuglalífið í sínu nánasta umhverfi. Það skiptir ekki máli þó fólk byrji aðeins seinna að telja eða hætti fyrr – aðalatriðið er að vera með. \nGarðar fóstra víða auðugt lífríki og gegna hlutverki í vistkerfi því sem nær að dafna á byggðu bóli. Meira um fuglagarðinn og hvernig laða má fleiri fugla að garði. \nUpplýsingar um garðfuglakönnun og eyðblöðin sem fylgja könnunni má finna hér. \n  \nFuglavernd hvetur sem flesta að taka þátt. Þetta getur hentað einstaklingum jafnt sem fjölskyldum og er einkar fræðandi iðja.
URL:https://fuglavernd.is/vidburdur/gardfuglakonnun-vetrarlangt-2025-26/
LOCATION:Ísland\, Iceland
CATEGORIES:Fuglaskoðun,Garðfuglakönnun
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fuglavernd.is/wp-content/uploads/2025/10/Stari_SindriSkulason.jpg
ORGANIZER;CN="Fuglavernd":MAILTO:fuglavernd@fuglavernd.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251011T110000
DTEND;TZID=UTC:20251011T170000
DTSTAMP:20260615T101047
CREATED:20250826T132533Z
LAST-MODIFIED:20250930T110458Z
UID:21990-1760180400-1760202000@fuglavernd.is
SUMMARY:Fuglaskoðun á alþjóðlegum degi farfugla 11. október
DESCRIPTION:Fuglaskoðun \nAlþjóðlegi farfugladagurinn að hausti árið 2025 er laugardag  11. október og við förum í fuglaskoðun. Hálfgerð óvissuferð á þessum árstíma en alltaf einhverjir á flugi. \nFarið verður á einkabílum og við hittumst á bílaplaninu hjá Garðskagavita  kl. 11. \nMikilvægt: \n-Vinsamlega skráið ykkur fyrir kl. 13  fimmtudaginn 9. október  í netfangið fuglavernd@fuglavernd.is \n-Verið vel klædd \n-Sjónauki \n-Vinsamlega skráið ykkur fyrir kl. 13  fimmtudaginn 9. október  í netfangið fuglavernd@fuglavernd.is \nSkimum eftir fuglum á Garðskaga\, Sandgerði og Fitjum í  Njarðvíkum  klædd eftir veðri og vindum með sjónauka. \nHáfjara er í kringum kl. 14:30. \nÞeir sem eiga  ekki bíl munu væntanlega geta fengið far með öðrum. \nAðgangur  að salernum er á Byggðasafninu á Garðskaga. \nGerum ráð fyrir að snæða í Sandgerði. \n  \nFararstjórar verða  Anna-María Lind starfsmaður á skrifstofu Fuglaverndar og Vala Friðriksdóttir líffræðingur. \n 
URL:https://fuglavernd.is/vidburdur/fuglaskodun-a-althjodlegum-degi-farfugla-11-oktober/
LOCATION:Garðskagaviti\, Garðskagaviti\, Garður\, 250
CATEGORIES:Dagsferð,Fuglaskoðun
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fuglavernd.is/wp-content/uploads/2019/05/Fuglaskodun_Gardskagavita_01.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251011T103000
DTEND;TZID=UTC:20251011T120000
DTSTAMP:20260615T101047
CREATED:20251006T103559Z
LAST-MODIFIED:20251006T104118Z
UID:22072-1760178600-1760184000@fuglavernd.is
SUMMARY:Fugla-\, gróður- og söguganga í Hólavallakirkjugarði
DESCRIPTION:Anna Pratichi Gísladóttir og Heimir Björn Janusarson leiða göngu.\nAnna Pratichi Gísladóttir\, líffræðinemi og Heimir Björn Janusarson\, umsjónarmaður Hólavallagarðs\,  munu sjá um 1-2 klt göngu um Hólavallakirkjugarð við Suðurgötu. \nFjallað verður um fugla\, vetrarfóðrun smáfugla\, tré og runna sem fuglar nýta sér. Heimsótt verða leiði skáldanna Þorsteins Erlingssonar (“Sú rödd var svo fögur\, svo hugljúf og hrein…” ) og Páls Ólafssonar (“Lóan er komin að kveða burt snjóinn…”). \nÞátttaka í fugla-\, gróður og sögugöngu kostar 1500 krónur og allir fuglavinir eru velkomnir. \nSkráning er á heimasíðu  Kirkjugarða Reykjavikur og mannskapurinn mun hittast við starfsmannahús í garðinum við Ljósvallagötu. \nFuglavernd mælir með að fólk mæti í hlýlegum fötum\, sem eru aðeins of heit fyrir göngu en fín í létta göngu og stöður við fugla- og plöntuskoðun og við að hlýða á frásagnir um skáld. Gott að hafa með sér aukaflíkur í bakpoka/ tösku. Einnig er gott að hafa með sér sjónauka\, best er að vera með lítinn sjónauka sem nýtist í fuglaskoðun í trjám og milli trjáa og leiða.
URL:https://fuglavernd.is/vidburdur/fugla-grodur-og-soguganga-i-holavallakirkjugardi/
CATEGORIES:Fuglaskoðun
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fuglavernd.is/wp-content/uploads/2013/04/Skogarthrostur_Orn_Oskarsson_1024.jpg
ORGANIZER;CN="Fuglavernd":MAILTO:fuglavernd@fuglavernd.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250626T183000
DTEND;TZID=UTC:20250626T200000
DTSTAMP:20260615T101047
CREATED:20250618T104633Z
LAST-MODIFIED:20260302T133031Z
UID:21919-1750962600-1750968000@fuglavernd.is
SUMMARY:Friðland í Flóa - fuglaskoðun 26. júní kl. 18:30
DESCRIPTION:Fimmtudag 26. júní  verður boðið upp á fuglaskoðun í Friðlandinu í Flóa og leiðsögumaður að þessu sinni er Vala Friðriksdóttir\, líffræðingur og félagi í Fuglavernd. \n  \nGengið er frá fuglaskoðunarhúsinu við bílastæðið í Friðlandinu \nFuglaskoðunin hefst kl. 18:30 \nTímalengd: 1-1\,5 klt. \nNauðsynlegur fatnaður: Gúmmístígvél og hlýr fatnaður. \nMikilvægur útbúnaður: Sjónauki. \nHámarksfjöldi er 15 manns. \nVinsamlega skráið ykkur með tölvupósti til fuglavernd@fuglavernd.is fyrir kl.13\,  26. júní. \nNánari upplýsingar um svæðið og hvar það er staðsett norðan Eyrarbakka. \n  \nGera má ráð fyrir rúma klukkustund í göngu og stöður til að sjá\, heyra og upplifa fuglalífið í Friðlandinu. \nHlýr fatnaður er t.d. tvær peysur undir vindheldum stakki jafnvel lopapeysa eða dúnúlpa. Húfa\, vettlingar og ullarsokkar. Það er júní og sumar en getur orðið svalt á kvöldin. Ef engin eru stígvelin þá fer maður í ullarsokka og sandala / skó sem mega þá blotna.  \nLómur (Gavia Stellata) ©Alex Máni\nVotlendisfuglar einkenna svæðið og eru bein tengsl við nálæg fuglarík svæði eins og fjöruna\, Ölfusárós og Ölfusforir. Fuglalíf Friðlandsins í Flóa er sérstaklega auðugt og tegundaríkt á varptíma\, en nærri 25 fuglategundir verpa þar að staðaldri. Einkennisfugl svæðisins er lómur. \n  \nFriðlandið í Flóa er votlendi sem hafist var handa við að endurheimta árið 1997 í samstarfi Fuglaverndar og sveitarfélagsins Árborgar.  Lesa meira um Friðlandið í Flóa\, gróður\, dýralíf og starf Fuglaverndar á svæðinu. \nHér er á ferðinni frábært tækifæri fyrir alla jafnt einstaklinga og  fjölskyldur að upplifa lifandi náttúru. \nAllir velkomnir og aðgangur ókeypis. \n  \nVinsamlega skráið ykkur með tölvupósti til fuglavernd@fuglavernd.is fyrir kl. 13 fimmtudag 26. júní . \n  \nVeðurspá fyrir Eyrarbakka er fín fyrir fimmtudagskvöld \n \n 
URL:https://fuglavernd.is/vidburdur/fridland-i-floa-fuglaskodun-26-juni-kl-1830/
CATEGORIES:Fuglaskoðun
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fuglavernd.is/wp-content/uploads/2025/05/SveinnJonsson_jadrakan-merkt.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250611T183000
DTEND;TZID=UTC:20250611T200000
DTSTAMP:20260615T101047
CREATED:20250602T111506Z
LAST-MODIFIED:20250610T110437Z
UID:21909-1749666600-1749672000@fuglavernd.is
SUMMARY:Friðland í Flóa - fuglaskoðun 11. júní
DESCRIPTION:Miðvikudag  11. júní  verður boðið upp á fuglaskoðun í Friðlandinu í Flóa og leiðsögumaður að þessu sinni er Anna María Lind Geirsdóttir áhugamaður um fugla og náttúru og skrifstofustarfsmaður Fuglaverndar.  \nBrottför er frá fuglaskoðunarhúsinu við bílastæðið í Friðlandinu \nFuglaskoðunin hefst kl. 18:30 \nTímalengd: 1-1\,5 klt. \nNauðsynlegur fatnaður: Gúmmístígvél. Hlýr fatnaður. \nMikilvægur útbúnaður: Sjónauki. \nHámarksfjöldi er 15 manns. \nVinsamlega skráið ykkur með tölvupósti til fuglavernd@fuglavernd.is fyrir kl.15  þriðjudag 10. júní. \nNánari upplýsingar um svæðið og hvar það er staðsett norðan Eyrarbakka. \n  \nGera má ráð fyrir rúma klukkustund í göngu og stöður til að sjá\, heyra og upplifa fuglalífið í Friðlandinu. \nHlýr fatnaður er t.d. tvær peysur undir vindheldum stakki jafnvel lopapeysa eða dúnúlpa. Húfa\, vettlingar og ullarsokkar. Það er júní og sumar en getur orðið svalt á kvöldin. \nLómur (Gavia Stellata) ©Alex Máni\nVotlendisfuglar einkenna svæðið og eru bein tengsl við nálæg fuglarík svæði eins og fjöruna\, Ölfusárós og Ölfusforir. Fuglalíf Friðlandsins í Flóa er sérstaklega auðugt og tegundaríkt á varptíma\, en nærri 25 fuglategundir verpa þar að staðaldri. Einkennisfugl svæðisins er lómurinn. \n  \nFriðlandið í Flóa er votlendi sem hafist var handa við að endurheimta árið 1997 í samstarfi Fuglaverndar og sveitarfélagsins Árborgar.  Lesa meira um Friðlandið í Flóa\, gróður\, dýralíf og starf Fuglaverndar á svæðinu. \nHér er á ferðinni frábært tækifæri fyrir alla jafnt einstaklinga og  fjölskyldur að upplifa lifandi náttúru. \nAllir velkomnir og aðgangur ókeypis. \n  \nVinsamlega skráið ykkur með tölvupósti til fuglavernd@fuglavernd.is fyrir kl. 15  þriðjudag 10. júní.
URL:https://fuglavernd.is/vidburdur/fridland-i-floa-fuglaskodun-11-juni/
CATEGORIES:Fuglaskoðun
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fuglavernd.is/wp-content/uploads/2025/05/SveinnJonsson_jadrakan-merkt.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250611T180000
DTEND;TZID=UTC:20250625T200000
DTSTAMP:20260615T101047
CREATED:20250527T122807Z
LAST-MODIFIED:20250527T132448Z
UID:21897-1749664800-1750881600@fuglavernd.is
SUMMARY:Fuglaskoðun í friðlandi í Flóa sumarið 2025
DESCRIPTION:Fuglaskoðun\nStefnt er á að vera með tvær fuglagöngur í Friðlandi í Flóa í júní. Enn er ekki búið að festa dagsetningu en fylgist með á viðburðadagatali Fuglaverndar. \n  \nBrottför er frá fuglaskoðunarhúsinu við bílastæðið í Friðlandinu \nFuglaskoðunin hefst kl. 18:30 \nTímalengd: 1-1\,5 klt. \nNauðsynlegur fatnaður: Gúmmístígvél. Hlýr fatnaður. \nMikilvægur útbúnaður: Sjónauki. \nHámarksfjöldi er 20 manns. \nVinsamlega skráið ykkur með tölvupósti til fuglavernd@fuglavernd.is \nGera má ráð fyrir rúma klukkustund í göngu og stöður til að sjá\, heyra og upplifa fuglalífið í Friðlandinu. \nHlýr fatnaður er t.d. tvær peysur undir vindheldum stakki jafnvel lopapeysa eða dúnúlpa. Húfa\, vettlngar og ullarsokkar. Það er júní og sumar en getur orðið svalt á kvöldin. \nVotlendisfuglar einkenna svæðið og eru bein tengsl við nálæg fuglarík svæði eins og fjöruna\, Ölfusárós og Ölfusforir. Fuglalíf Friðlandsins í Flóa er sérstaklega auðugt og tegundaríkt á varptíma\, en nærri 25 fuglategundir verpa þar að staðaldri. Einkennisfugl svæðisins er lómurinn. \n  \nFriðlandið í Flóa er votlendi sem hafist var handa við að endurheimta árið 1997 í samstarfi Fuglaverndar og sveitarfélagsins Árborgar. Lesa meira um Friðlandið í Flóa\, gróður\, dýralíf og starf Fuglaverndar á svæðinu. \nHér er á ferðinni frábært tækifæri fyrir alla jafnt einstaklinga og fjölskyldur að upplifa lifandi náttúru. \nAllir velkomnir og aðgangur ókeypis. \n  \n  \nAfstöðukort af Friðlandinu í Flóa.\n  \n  \n 
URL:https://fuglavernd.is/vidburdur/fuglaskodun-i-fridlandi-i-floa-2/
CATEGORIES:Fuglaskoðun
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fuglavernd.is/wp-content/uploads/2024/06/fridland-hus-og-skilti.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250607T140000
DTEND;TZID=UTC:20250607T160000
DTSTAMP:20260615T101047
CREATED:20250522T154024Z
LAST-MODIFIED:20250528T153647Z
UID:21830-1749304800-1749312000@fuglavernd.is
SUMMARY:Fuglalíf við Sogið - fuglaskoðun
DESCRIPTION:Fuglalíf við Sogið \nLaugardaginn 7. júní kl. 14:00 munu tveir félagar í Fuglavernd leiða áhugasama og líta og hlusta eftir fuglum við Sogið  undir Ingólfsfjalli. \nTekið verður á móti áhugasömum fuglavinum á bílastæði Alviðru. Gengið verður af stað kl. 14 niður að Sogi og hlustað og skimað eftir fuglum.  Gangan er létt en hafa verður í huga\, að við fuglaskoðun  \ner mikið staðið\,  hlustað og horft\, og því mikilvægt að vera vel klædd. Fuglaskoðunin varir í  um 2  klukkutíma.  \nEftir fuglaskoðun býður Landvernd upp á kakó og kleinur í bóndabænum og verður að sjálfsögðu  spjallað um fugla. Hægt verður að skoða uppstoppaða fugla sem eru geymdir í bænum.  \n14:00 Fuglaskoðun hefst.  \n16: 00 kakó\, kleinur og spjall \nGott að hafa með sér: Sjónauka.  \nMunið að vera klædd eftir veðri. \nHeimasíða Alviðru
URL:https://fuglavernd.is/vidburdur/fuglalif-vid-sogid/
LOCATION:Alviðra
CATEGORIES:Fuglaskoðun
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fuglavernd.is/wp-content/uploads/2020/04/SindriSkulason_straumond.jpg
ORGANIZER;CN="Fuglavernd":MAILTO:fuglavernd@fuglavernd.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250522T190000
DTEND;TZID=UTC:20250522T210000
DTSTAMP:20260615T101047
CREATED:20250428T120230Z
LAST-MODIFIED:20250428T132259Z
UID:21656-1747940400-1747947600@fuglavernd.is
SUMMARY:Myndasýningarkvöld Fuglaverndar og Canon: Mia Surakka og Jóhann Óli Hilmarsson
DESCRIPTION:Myndir eftir Miu Surakka. \nAugnablik á flugi \nJóhann Óli Hilmarsson og Mia Surakka segja sögurnar á bakvið ljósmyndir sínar af fuglum.\nCanon og Ofar í samstarfi við Fuglavernd standa fyrir afar áhugaverðum viðburði fimmtudaginn 22. maí þar sem ljósmyndarnir Jóhann Óli Hilmarsson og Mia Surakka munu sýna eigin ljósmyndir af fuglum og segja sögurnar á bak við þær. \nCanon sérfræðingar hjá Ofar ásamt Anders Sävås\, Product Specialist hjá Canon\, mun sýna úrval af Canon EOS R myndavélum og RF linsum. \nViðburðurinn fer fram í Ofar\, Borgartúni 37. Húsið opnar kl. 19:00 þar sem áhugasamir geta skoðað Canon ljósmyndabúnað og kynningarnar hefjast kl. 19.30. \nNánar um Jóhann Óla og Miu á heimasíðu Ofar \nÓkeypis er á viðburðinn en nauðsynlegt  er að skrá sig hér.  \n  \n  \nMyndir eftir Jóhann Óla Hilmarsson
URL:https://fuglavernd.is/vidburdur/myndasyningarkvold-fuglaverndar-og-canon-mia-surakka-og-johann-oli-hilmarsson/
LOCATION:Ofar salurinn\, Borgartún 37\, Reykjavík\, 105\, Iceland
CATEGORIES:Myndasýning
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://fuglavernd.is/wp-content/uploads/2025/04/mia-surakka.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250515T200000
DTEND;TZID=UTC:20250515T223000
DTSTAMP:20260615T101047
CREATED:20250513T090417Z
LAST-MODIFIED:20260205T112241Z
UID:21771-1747339200-1747348200@fuglavernd.is
SUMMARY:Wingspan spilamót í boði Fuglaverndar og Landverndar
DESCRIPTION:Er hettumávur uppáhalds fuglinn þinn? Ert þú uppfull/ur/t af æsingi yfir því að farfuglarnir séu LOKSINS mættir til landsins? Vantar þig fleira fuglaáhugafólk í líf þitt?\nKOMDU Á WINGSPAN SPILAMÓT Á LOFT HOSTEL ÞANN 15.MAÍ\nVið ætlum að bjóða til Wingspan spilamóts þar sem spiluð verður grunnútgáfa spilsins (án expansion pakka) á nokkrum borðum í einu. STIGAHÆSTU SPILARAR KVÖLDSINS HLJÓTA VEGLEGA (fugla)VINNINGA!\nSkráðu þig hér: https://www.surveymonkey.com/r/D3LXWLT\nDæmi um vinninga:*12.6 kg af gómsætu fuglafóðri*Fuglabarmnælur*Fóðurkúlumedalíur*Aðdáun foreldra þinna sem hafa aldrei skilið hvað þetta fugladæmi snýst eiginlega um.\nAllt fugla- og spilafólk er hjartanlega velkomið á kvöldið á Loft Hostel á Bankastræti 7\, 101 Reykjavík. Takið með ykkur góðan spilafélaga\, fáið ykkur TILBOÐSBJÓR á barnum því það er kominn tími á fugladansinn! Athugið að það þarf ekki að kunna spilin til að mæta. Spilasérfræðingar verða á svæðinu frá báðum samtökum og leiða þá sem vilja í gegnum spilin.\nHappy hour er frá 15:00 til 19:00 og þátttakendur fá 15% afslátt af bjór á dælu og húsvíni.\nMá bjóða þér að skrá þig í Landvernd og/eða Fuglavernd?https://landvernd.is/gerast-felagi/https://fuglavernd.is/…/um…/gerast-felagi-i-fuglavernd/\n///// English:Is the Black-headed Gull your favourite bird? Are you bursting from excitement from the fact that the migratory birds are FINALLY here? Do you need more bird-minded people in your life?JOIN US FOR A WINGSPAN TOURNAMENT AT LOFT HOSTEL ON MAY 15TH!\nYou are hereby invited to the Icelandic Wingspan Tournament where we will be playing the standard edition of the board game Wingspan (no expansion packs) on multiple tables at once. THE PLAYERS WITH THE MOST POINTS AT THE END OF THE TOURNAMENT SHALL RECEIVE GENEROUS (bird) PRIZES!\nRegister here: https://www.surveymonkey.com/r/D3LXWLT\nThese prizes include:*12.6 kg af bird feed*Bird pins*Bird-seed ball medallions*The respect of your parents (finally) which have never quite understood this bird interest of yours.\nAll bird and board game enthusiasts are welcome to Loft Hostel at Bankastræti 7\, 101 Reykjavík. Grab a friend and buy yourself a beer at the bar because it’s Wingspan time! If you are a beginner at Wingspan don’t worry because our experts will be there to guide you through the wonders of Wingspan.\nHappy hour is between 15:00 til 19:00 og participants get 15% discount of beer on tap and the housewine.\n\nWould you like to join Landvernd and/or Fuglavernd?https://landvernd.is/gerast-felagi/https://fuglavernd.is/…/um…/gerast-felagi-i-fuglavernd/ \nSee less
URL:https://fuglavernd.is/vidburdur/wingspan-spilamot-i-bodi-fuglaverndar-og-landverndar/
LOCATION:Loft Hostel\, Bankastræti 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Spilakvöld: Wingspan
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fuglavernd.is/wp-content/uploads/2025/05/wingspan-2025.jpg
ORGANIZER;CN="Fuglavernd":MAILTO:fuglavernd@fuglavernd.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250426T100000
DTEND;TZID=UTC:20250504T170000
DTSTAMP:20260615T101047
CREATED:20250211T101611Z
LAST-MODIFIED:20250213T103054Z
UID:21524-1745661600-1746378000@fuglavernd.is
SUMMARY:Vorverk í Friðlandi í Flóa 2025
DESCRIPTION:Við stefnum á  að fara í leiðangur í Friðland í Flóa til að dytta að fuglaskoðunarhúsinu og í önnur verk. Farið verður eftir sumardaginn fyrsta\, veður ræður hvaða dag. \nÞað er kominn tími á að mála fuglaskoðunarhúsið og til þess þurfum við þurrviðri og góðan mannskap til að skrapa\, grunna og mála. Einnig þarf að tína rusl og þrífa kamarinn og fleiri vorverk. \nSjálfboðaliðar mætið í gúmmístígvélum og vinnugallanum og verið hlýlega klædd og með aukaflíkur fyrir hádegishressinguna og kaffið sem  verður í boði Fuglaverndar á pallinum. \nEnn hefur ekki verið ákveðið hvort farið verði á virkum degi eða um helgi. \nÞeir sem hafa áhuga á að koma í sjálfboðavinnu í Friðland í Flóa; endilega sendið okkur  línu á fuglavernd@fuglavernd.is \nHér er hægt að fræðast um Friðland í Flóa
URL:https://fuglavernd.is/vidburdur/vorverk-i-fridlandi-i-floa/
CATEGORIES:Sjálfboðaliðar,Vinnudagur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fuglavernd.is/wp-content/uploads/2023/05/Anna-Lyck-Filbert-Orn-THorvaldsson-Helga-Gardarsdottir-e1684159759503.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250410T160000
DTEND;TZID=UTC:20250410T180000
DTSTAMP:20260615T101047
CREATED:20250127T140600Z
LAST-MODIFIED:20250127T140600Z
UID:21508-1744300800-1744308000@fuglavernd.is
SUMMARY:Aðalfundur Fuglaverndar 2025
DESCRIPTION:Tjaldur með bláskel. Ljósmyndari; Jónína Guðrún Óskarsdóttir. \nAðalfundur 2025\nStefnt er að því að halda aðalfund Fuglaverndar fyrir starfsárið 2024 fimmtudaginn 10. apríl n.k. í Bókasafni Kópavogs\, Hamraborg 6a. \nFrestur til að skila inn framboðum til stjórnarkjörs rennur út 14. febrúar. \nÁ hverju ári ganga þrír úr stjórn félagsins og annað hvert ár gengur formaður úr stjórn. Í ár er sæti formanns laust og þrjú sæti í stjórn. Núverandi formaður gefur kost á sér áfram. Stjórn Fuglaverndar. \nTillögum að breytingum á samþykktum félagsins þarf að skila inn fyrir 15. febrúar. Sjá lög og siðareglur félagsins \nFramboðum í stjórn og breytingartillögum skal skilað með tölvupósti á netfang Fuglaverndar fuglavernd@fuglavernd.is eða bréfleiðis til stjórnar.
URL:https://fuglavernd.is/vidburdur/adalfundur-fuglaverndar-2025/
LOCATION:Bókasafn Kópavogs\, Hamraborg 6 a\, Kópavogur\, Kópavogur\, 200\, Iceland
CATEGORIES:Fundir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fuglavernd.is/wp-content/uploads/2025/01/Tjaldur-med-blaskel.-Ljosmyndari-Jonina-Gudrun-Oskarsdottir.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250405T110000
DTEND;TZID=UTC:20250405T150000
DTSTAMP:20260615T101047
CREATED:20250206T162949Z
LAST-MODIFIED:20250331T133657Z
UID:21520-1743850800-1743865200@fuglavernd.is
SUMMARY:Vorverk í Vatnsmýrinni 2025
DESCRIPTION:Á hverju vori mæta sjálfboðaliðar Fuglaverndar í Vatnsmýrina til að hreinsa rusl og bæta aðgengi vatnafugla og vaðfugla að tjörnum og mýri.  Hlýr fatnaður og stígvél er lykilatriði og þeir sem eiga vöðlur ættu endilega að koma með þær.\nTiltekt í Vatnsmýrinni í Reykjavík verður undir stjórn Ólafs Einarssonar líffræðings og kennara\, en ekki Ólafs Karls Nielsens eins og fyrr sagði en hann forfallast.  Starfsmaður Fuglaverndar verður einnig á staðnum. \nSjálfboðaliðar\, jafnt félagar sem aðrir velunnarar Tjarnarinnar\,munu tína rusl og bæta aðgengi fugla að tjörnum og síkjum í Vatnsmýrinni. Hádegismatur verður í boði veitingastaðarins Plöntunnar og Fuglaverndar. Norræna húsið býður okkur afnot af kaffistofu starfsmanna hússins. Allir hollvinir Tjarnarinnar velkomnir jafnt félagar og aðrir. Mikilvægt er að skrá sig fyrirfram svo við getum áætlað magn súpu og brauðs fyrir mannskapinn. \nÞeir sem eiga rusltatínur geta komið með þær en  umhverissvið Reykjavíkurborgar mun sjá okkur fyrir hrífum\, ruslatínum og  greinum til að setja á bakka tjarna og síkja. Fyrir utan að tína rusl og snæða hádegisverð þá er hægt að skima eftir hvaða fuglar eru mættir í Vatnsmýrina. \nNauðsynlegt er að vera í stígvélum til að geta stigið út í vatnið og Fuglavernd hvetur alla þá sem að eiga vöðlur að vera í þeim\, nóg af rusli á botni tjarna og síkja. \n  \nSkráning í Vorverk í Vatnsmýri: Nauðsynlegt er að skrá sig  svo Plantan verði með næga súpu fyrir alla sjálfboðaliðana sem að mæta.\nVinsamlega skráið ykkur fyrir kl. 15\, fimmtudaginn 3. apríl. \n-Með tölvupósti til fuglavernd@fuglavernd.is\n-Með símtali 5620477\, síminn opinn kl. 9-13 virka daga nema föstudaga\n-Messenger á Facebook \n  \nHér er hægt að lesa meira um Vatnsmýrina og hollvini Tjarnarinnar. \nÁ Facebook er síða tileinkuð Vatnsmýrinni
URL:https://fuglavernd.is/vidburdur/vorverk-i-vatnsmyrinni-2/
CATEGORIES:Sjálfboðaliðar,Vinnudagur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fuglavernd.is/wp-content/uploads/2024/04/IMG_3080.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250318T193000
DTEND;TZID=UTC:20250318T203000
DTSTAMP:20260615T101047
CREATED:20241111T155659Z
LAST-MODIFIED:20250313T122527Z
UID:21259-1742326200-1742329800@fuglavernd.is
SUMMARY:Hverfandi hljóðheimur íslenska sumarsins?
DESCRIPTION:Ógnir og staða íslenskra mófugla.\nSöngur íslenskra mófugla er eitt af einkennum íslenska sumarsins. Hér á Íslandi má enn finna stór opin búsvæði sem eru kjörvarpstöðvar ýmissa fuglategunda og er þéttleiki ýmissa vaðfugla með því hæsta sem þekkist í heiminum. Fjöldi ógna steðja að þessum tegundum\, þá helst vegna mannlegrar uppbygginar og tilheyrandi búsvæðabreytinga. Stór hluti mófugla Íslands eru vaðfuglar sem fer almennt fækkandi í heiminum þar sem búsvæði þeirra minnka ört. Þessar tegundir eru langlífar og því geta áhrif búsvæðamissis verið lengi að koma fram. Í erindinu verður farið yfir stöðu íslenska mófugla og auk þess stiklað á stóru um rannsóknir sem hafa verið stundaðar um áhrif ýmissar landnotkunar (hús\, vegir\, raflínur og skógar) á þéttleika mófugla í nánasta umhverfi og hvaða áhrif þau hafa á þéttleika og klakárangur þessara tegunda \n\n			\n	Heiðlóa. Ljósmynd Aldís PálsdóttirHrossagaukur. Ljósmynd Aldís PálsdóttirStelkur. Ljósmynd Aldís PálsdóttirTjaldar. Ljósmynd Aldís Pálsdóttir\n\nAldís Erna Pálsdóttir er vistfræðingur og starfar hjá Náttúrfræðistofnun Íslands. Aldís situr í stjórn Fuglaverndar. \nHún lauk Ph.D. í líffræði frá líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands\, 2022. \nFrítt inn fyrir félaga en 1000 krónur fyrir aðra gesti. \nFundurinn er haldinn í Arion banka\, Borgartúni 19 og byrjar klukkan 19:30. \nStarfsmaður Fuglaverndar verður á staðnum og hægt verður að að fá tímaritið  BirdLife International gefins eða að láni. Einnig verða nokkrir fóðrarar úr verslun Fuglaverndar til sölu á staðnum.
URL:https://fuglavernd.is/vidburdur/erindi-um-mofugla/
LOCATION:Sal Arionbanka\, Borgartún 19\, Reykjavík\, 105
CATEGORIES:Fræðsluerindi
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fuglavernd.is/wp-content/uploads/2025/03/Heidloa-Aldis-Palsdottir.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250215T110000
DTEND;TZID=UTC:20250215T130000
DTSTAMP:20260615T101047
CREATED:20250106T154139Z
LAST-MODIFIED:20250211T154551Z
UID:21378-1739617200-1739624400@fuglavernd.is
SUMMARY:Fuglaskoðun í Hólavallakirkjugarði í Reykjavík
DESCRIPTION:Glókollur í Hólavallakirkjugarði. Ljósm. Árni Árnason. \nAnna Pratichi Gísladóttir\, líffræðinemi\,  mun sjá um 1-2 klt leiðsögn í fuglaskoðun um Hólavallakirkjugarð. \nFuglaskoðunin er ókeypis og allir fuglavinir eru velkomnir. \nHittumst við hliðið á horni Ljósvallagötu og Hringbrautar. \nFuglavernd mælir með að fólk mæti í hlýlegum fötum\, sem eru aðeins of heit fyrir göngu en fín í létta göngu og stöður við fuglaskoðun. Gott að hafa með sér aukaflíkur í bakpoka/ tösku. Einnig er gott að hafa með sér sjónauka\, best er að vera með lítinn sjónauka sem nýtist í fuglaskoðun í trjám og milli trjáa og leiða. \nMjög gott ef þið  skráið ykkur  með tölvupósti til fuglavernd@fuglavernd.is fyrir kl. 15  fimmtudaginn 13. febrúar: Nafn\, fjöldi þáttakanda og netfang. \nGert er ráð fyrir að fuglaskoðunin verði 15. febrúar en ef veður verða óhagstæð þann dag breytist dagsetning. \nFylgist með hér  á viðburðadagatalinu. \n  \n 
URL:https://fuglavernd.is/vidburdur/fuglaskodun-i-holavallakirkjugardi-i-reykjavik/
LOCATION:Hólavallakirkjugarður\, Suðurgata\, Iceland
CATEGORIES:Fuglaskoðun
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://fuglavernd.is/wp-content/uploads/2023/10/glokollur-holavallarkirkjugardi-arni-arnason-scaled-e1736263191157.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR