Tvær meistaravarnir um fugla
Skrifað af: Fuglavernd   
Þriðjudagur, 15. Maí 2012 15:51
Bendum á meistaraprófsvarnir í líffræði sem haldnar verða núna í maí þar sem rannsóknarefnið er fuglar. Bæði erindin eru á Íslensku en það eru þau Aðalsteinn Örn Snæþórsson með erindi um varpárangur og lífslíkur rjúpuhæna að sumri og Borgný Katrínardóttir með erindi um mikilvægi hálfgróinna áreyra á Íslandi fyrir spóa.  Sjá dagana 18. og 29. maí í dagskrá félagsins og á vef Háskóla Íslands. 
 
Fuglaskoðun í friðlandinu í Vatnsmýrinni 12. maí kl. 14:00
Skrifað af: Fuglavernd   
Fimmtudagur, 10. Maí 2012 10:22
Norræna húsið verður með Vatnsmýrarhátíð laugardaginn 12.maí - frá 13:00-15:00 og á dagskránni er fuglaskoðun sem tveir félagar í Fuglavernd leiða, þeir Jakob Sigurðsson og Hjálmar Jónsson. Lagt af stað klukkan 14:00 í andyrinu en hér má skoða dagskrá hátíðarinnar.
 
Fuglaskoðun á Álftanesi 13. maí kl. 13:00
Skrifað af: Fuglavernd   
Fimmtudagur, 10. Maí 2012 09:51
Í tilefni af alþjóðlega farfugladeginum ætlar Fuglavernd að vera með fuglaskoðun á Álftanesi sunnudaginn 13. maí og þá verður lögð áhersla á að skoða farfuglana. Lagt verður af stað frá Kasthúsatjörn gangandi stundvíslega klukkan 13:00 og er áætlað að fuglaskoðunin taki um einn og hálfan tíma. Allir velkomnir en munið eftir sjónaukanum. Leiðsögn verður í umsjón Ólafs Torfasonar.  
 
Rjúpnatalning í Krossanesborgum um miðjan maí
Skrifað af: Fuglavernd   
Þriðjudagur, 08. Maí 2012 00:00
Nú stendur til að telja rjúpur í Krossanesborgum við Akureyri - í kringum miðjan maí - fer eftir veðri og vindum. Þetta er samvinnuverkefni með Náttúrufræðistofnun Íslands. Þeir sem vilja taka þátt eða fylgjast með talningu setji sig í samband við Sverri Thorstensen í síma 4611604/8653297 eða með pósti á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
 
Yfirstaðið námskeið Fuglaverndar um fugla og fuglaskoðun
Skrifað af: Fuglavernd   
Mánudagur, 07. Maí 2012 00:00

Fuglavernd hélt námskeið nú á vordögum, þar sem fuglar og fuglaskoðun var meginefnið. Það heppnaðist vel og var þátttaka góð, 14 félagar.
Lokaþáttur námskeiðsins var ferð um Innnes laugardaginn 5. maí. Í ferðinni sáust 41 fuglategund og er það góður árangur á þessum tíma árs. Himbrimar sáust á Hrauntúnstjörn og flórgoðar á Urriðakotsvatni. Mandarinond_Elma_Run_fuglask_ws

Meðal farfugla sáust tveir spóar við Elliðavatn, steindeplar á nokkrum stöðum, rauðbrystingahópar og ein kría á Álftanesi. Þar voru jafnframt 6 sanderlur, líklega þær fyrstu sem sáust á landinu þetta vorið. Mikið var af margæs á Álftanesi.

Punkturinn yfir i-ið var glæsilegur mandarínandarsteggur sem Elma Rún og fleiri í hópnum mynduðu á Breiðabólstaðatjörn á Álftanesi. Ferðin endaði síðan í Elliðaárdal þar sem píslin glókollur sýndi sig fyrir hópinn og við skoðuðum býflugnabú í eigu stjórnarmanns í Fuglavernd.

Vegna góðrar þátttöku og ánægju með námskeiðið munum við endurtaka leikinn að ári. Við minnum á fuglaskoðunarferðina á Snæfellsnes 9. júní.

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 34