|
Vöktun
og rannsóknir
Vöktun
|
Rannsóknir |
Merkingar
Rannsóknir
Örninn er afar viðkvæmur og því
þarf mikla alúð og nærgætni
í umgengni við þennan sjaldgæfa
fugl. Rannsóknir á örnum hafa
lengst af beinst að því að
meta hversu margir fuglar væru á
landinu og eins hversu margir ungar hafa komist
á legg. Einnig hefur verið farið
í saumana á tiltækum gögnum
um útbreiðslu og tíðni arna
áður fyrr. Samhliða heimsóknum
í hreiður hafa ungar verið merktir,
einkum á síðari árum
og fæðuleifum safnað til greiningar.
Þá hafa tvívegis farið
fram ítarlegar rannsóknir á
meintu tjóni af völdum arna; 1959-60
og 1991.
Nýverið hófust rannsóknir
á erfðabreytileika arnarstofnsins og
eru þær unnar af Náttúrufræðistofnun
og sænskum samstarfsaðilum annars vegar
(samanburður á arnarstofnum á
norðurhveli) og hins vegar af Náttúrustofu
Vesturlands í Stykkishólmi og Náttúrufræðistofnun
(erfðabreytileiki íslenska arnarstofnsins).
Einnig er unnið að rannsóknum á
eiturefnum í íslenskum örnum
i samstarfi fyrrgreindra aðila og Háskóla
Íslands.
| |
|
|
|
Finnur Logi
frá Fuglavernd og Kristinn Haukur
frá Náttúrufræðistofnun,
að störfum við rannsóknir
og merkingu arnarunga.
Ljósmynd © Daníel
Bergmann
|
Meira um vöktun: Merkingar
Til
baka
|