|
Haförninn
Um örninn |
Fjöldi |
Útbreiðsla
|
Setur |
Tjón |
Staða |
Útlönd
Haförninn, sem oftast er kallaður örninn,
er stór ránfugl, vænghafið
um 220 cm og lengdin frá goggi aftur á
stélenda er um 90 cm. Kvenfuglinn er nokkru
stærri og þyngri (56 kg) en
karlfuglinn (45 kg). Ernir hafa gular klær,
goggurinn er dökkur á ungfuglum en
lýsist og verður gulur á kynþroska
örnum. Ungir ernir á fyrsta ári
eru dökkbrúnir en stél hvítt
á fullorðnum örnum. Háls,
herðar og höfuð lýsast og
verða rjómagul með aldrinum. Latneskt
heiti arnarins er Haliaeetus albicilla.

Fullorðnir ernir halda sig að mestu leyti
í grennd við varpstöðvarnar.
Sums staðar erlendis eru ungir ernir farfuglar
eða flakka um. Ernir ferðast þó
fremur lítið samanborið við
marga aðra fugla og eftir að útbreiðslan
dróst saman í kjölfar fækkunar
þeirra á síðustu öld,
einöngruðust margir arnarstofnar. Ernir
á Íslandi og Grænlandi hafa
sennilega verið algjörlega einangraðir
í mjög langan tíma og ekkert
bendir til þess að ernir annars staðar
frá flækist þangað.
Alls hafa verið merktir um 238 ernir hér
á landi, aðallega stálpaðir
ungar í hreiðrum. Þeir tiltölulega
fáu fuglar sem hafa endurheimst fundust
flestir innan 50 km frá merkingastað
en ungir ernir hafa sést um land allt og
flakka því víða um.
Hversu gamlir verða ernir ?
Í 160 ára gamalli ritgerð eftir
Jónas Hallgrímsson segi að örninn
verði 100 ára eða meira og geti
flogið þrjár þingmannaleiðir
á klukkustundinni. Ernir geta að vísu
orðið mjög gamlir, það
er að segja þeir sem komast yfir erfiðasta
hjallann - fyrsta veturinn. Merkingar á
örnum erlendis gefa til kynna að sumir
þeirra komist á fertugsaldurinn og
í dýragörðum hafa ernir
lifað fram undir sextugt.
Meira um örninn: Fjöldi
|
Útbreiðsla
|
Setur |
Tjón |
Staða |
Útlönd
Til
baka
|