|
Lífshættir
arnarins
Val varpsvæða |
Varp |
Ungar |
Fæða
Á hvernig stöðum verpa ernir?
Nú verpa ernir fyrst og fremst í
eyjum og hólmum og lágum nesjum
og klettsnösum skammt frá sjó.
Nokkur pör verpa á hraundröngum
en engir ernir verpa um þessar mundir að
staðaldri í ókleifum hömrum
eða bröttum fjallshlíðum en
slíkir staðir voru helstu heimkynni
arna fyrir um 100 árum þegar ofsóknir
höfðu hrakið fuglana upp í
ógenga hamra. Hreiðrið er stundum
mikil lurkadyngja en stundum aðeins gróp
í grassvörð, fóðrað
með sinu. Einnig nota ernir þangdrjóla
og hvannir í hreiðrið.
| |
|
|
|
Arnarhreiður
í úfnu hrauni - Ljósmynd
© Jóhann Óli Hilmarsson
|
Breytingar á vali varpsvæða
Langt fram á 20. öld urpu ernir yfirleitt
á óaðgengilegum stöðum,
einkum í ókleifum hömrum en
varp á lágum og aðgengilegum
stöðum, í hólmum í
ám, vötnum og sjó var fremur
sjaldgæft. Upp úr 1940 hurfu ernir
smám saman úr hömrum en byrjuðu
á sama tíma að verpa að
staðaldri í eyjum og hólmum
fyrir landi.
Ernir kjósa sennilega að verpa á
láglendi og það hafa þeir
væntanlega gert áður en maðurinn
kom til sögunnar. Ýmsir kostir fylgja
því að verpa á láglendi,
m.a. er líklegt að minni orka fari
í veiðar og flug að og frá
hreiðri. Einnig getur verið veðursælla
og snjóléttara í hólmum
og nesjum en í háum hömrum.
Vísvitandi truflun, eyðilegging hreiðra
og arnardráp fyrr á öldum,
svo og umferð á viðkvæmum
tíma vegna margvíslegra nytja af
hólmum og eyjum, hefur fælt ernina
smám saman upp í hamra. Þar
voru meiri líkur á að þeim
tækist að koma upp ungum.
Trúlega voru helstu ástæður
fyrir varpi arna í ókleifum klettum:
öryggi fyrir ofsóknum, yfirsýn,
skjól fyrir veðrum og loks að aðra
góða og örugga varpstaði vantaði.
Sumir vilja e.t.v. bæta við vernd fyrir
ásókn refa. Ernir verpa á
mörgum stöðum sem eru aðgengilegir
fyrir lágfótu, hér á
landi sem og annars staðar, og ernir drepa
yrðlinga. Það er því
ólíklegt að örnum stafi
mikill ótti af refum.
Þegar ernir voru friðaðir snemma
á 20. öld, búseta í
eyjum lagðist af og nytjar af eyjum minnkuðu
um miðja öldina, áttu ernir aftur
griðlönd á sínum fornu
varpstöðvum. Það tók
því erni ekki nema sem svarar 12
arnarkynslóðum (19401970) að
flytja heimkynni sín að mestu leyti
úr hömrum í landi út
í tanga og hólma. Sennilega hefur
tekið mörg hundruð ár að
hrekja þá upp í fjöllin,
og alltaf voru einhverjir ernir sem reyndu að
verpa úti í eyjum, þrátt
fyrir að hreiður þeirra væru
eyðilögð.
Meira um lífshætti arna: Varp
|
Ungar |
Fæða
Til
baka
|